Fjögur af stærstu sveitarfélögunum lækka skatta á atvinnuhúsnæði

29.11.2018
Álagningarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt frumvörpum að fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir 2019. Hæsta lögleyfða prósenta, 1,65%, er auðkennd með rauðum lit. * Í áherslum fjárhagsáætlunar Garðabæjar kemur fram að skoðað verði á milli umræðna hvort svigrúm sé til lækkunar á álagningarprósentu fasteignagjalda.

Fjögur af tólf stærstu sveitarfélögum landsins hafa ákveðið að leggja til lækkun á fasteignaskatti á atvinnuhúsnæði, samkvæmt framlögðum frumvörpum að fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir 2019. Fimmta stóra sveitarfélagið hefur til skoðunar að lækka skattprósentuna en eitt af stóru sveitarfélögunum, Akureyri, hefur enn ekki lagt fram fjárhagsáætlun.

Hækkun fasteignamats á atvinnuhúsnæði á milli áranna 2018 og 2019 er 15% á landinu öllu, en 17,2% á höfuðborgarsvæðinu, þar sem mikill meirihluti fyrirtækja starfar. FA skrifaði sveitarfélögum, þar sem aðildarfyrirtæki félagsins starfa, bréf í haust og hvatti þau til að lækka álagningarprósentu fasteignagjalda til að mæta þessum fyrirséðu hækkunum og gífurlegum hækkunum undanfarinna ára.

Hafnarfjörður lækkar um 0,17% af fasteignamati
Þau fjögur sveitarfélög sem leggja til lækkun á álagningarprósentunni eru Hafnarfjörður (úr 1,57 af fasteignamati í 1,4%), Kópavogur (úr 1,6% í 1,5%), Mosfellsbær (úr 1,65% í 1,6%) og Akranes (úr 1,62% í 1,5804%). Í fjárhagsáætlun Garðabæjar er gert ráð fyrir óbreyttri álagningarprósentu, 1,65%, en í áherslum í greinargerð áætlunarinnar kemur fram að skoða skuli á milli umræðna hvort svigrúm sé til lækkunar. Samkvæmt upplýsingum sem FA hefur aflað sér er til alvarlegrar skoðunar hjá bæjaryfirvöldum í Garðabæ að leggja til lækkun fyrir seinni umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn, sem er áformuð 6. desember.

Þrjú sveitarfélög, Reykjanesbær, Árborg og Vestmannaeyjar, leggja til lækkun á álagningarprósentu fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði, en ekki á atvinnuhúsnæði. Þá gera fjárhagsáætlanir Reykjavíkurborgar, Seltjarnarness og Fjarðabyggðar ekki ráð fyrir neinni breytingu á fasteignasköttum. Akureyri hefur enn ekki lagt fram fjárhagsáætlun.

Málflutningur FA nær í gegn
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segist í viðtali við Viðskiptablaðið í dag fagna því að málflutningur félagsins hafi náð í gegn hjá ýmsum af stærri sveitarfélögunum. „Við höfum lagt áherslu á að sveitarfélögin axli ábyrgð á því með ríkisvaldinu að skapa fyrirtækjum hagstæðara skattaumhverfi, meðal annars til að greiða fyrir farsælli lendingu í kjarasamningum í vetur. Þá er í raun allsendis óforsvaranlegt að sveitarfélögin haldi áfram að hirða í sveitarsjóðina gífurlegar hækkanir á skattbyrði fyrirtækja vegna hækkana fasteignamats, sem oftast eiga sér enga samsvörun í afkomu eða greiðslugetu fyrirtækjanna. Að sama skapi eru það mikil vonbrigði að sum sveitarfélög sjái ástæðu til að sýna eigendum íbúðarhúsnæðis sanngirni vegna hækkana fasteignamats, en ekki eigendum atvinnuhúsnæðis.“

Ólafur segir að það standi upp úr að Reykjavíkurborg sé eina stóra sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem er harðákveðið í að halda fasteignaskatti á atvinnuhúsnæði áfram í lögbundnum toppi. Frumvarp að fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að á næstu fimm árum hækki fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði um 7,5 milljarða króna – verði 19,5 milljarðar árið 2023 í samanburði við 12 milljarða í ár. „Þetta samsvarar 57,7% hækkun. Til samanburðar má geta þess að árið 2013 voru tekjur borgarinnar af fasteignagjöldum á atvinnuhúsnæði 7,6 milljarðar. Á tíu árum þrefaldist því skattbyrði fyrirtækjanna í borginni vegna atvinnuhúsnæðis,“ segir Ólafur.

Uppfært 5. desember: Fyrri umræðu í bæjarstjórn Akureyrar um fjárhagsáætlun hefur verið seinkað til 11. desember.

Uppfært 7. desember: Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að álagningarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði verði 1,63% frá áramótum. 

Uppfært 17. desember: Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að álagningarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði verði 1,63% frá áramótum. Taflan sem sýnir breytingar fasteignagjalda milli ára hefur verið uppfærð í samræmi við ofangreint.

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning