Ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins, um að bann íslenskra stjórnvalda við innflutningi á fersku kjöti frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins standist ekki EES-samninginn, var birt í dag. Samkvæmt dómi EFTA-dómstólsins kveður EES-samningurinn á um að aðildarríkjunum beri að leyfa innflutning á fersku kjöti sem staðist hefur heilbrigðiseftirlit í upprunalandinu og óheimilt sé að gera kröfu um að kjötið hafi verið geymt í frysti í mánuð, eins og íslensk stjórnvöld hafa gert.
Félag atvinnurekenda fagnar þessari niðurstöðu EFTA-dómstólsins. „Dómurinn gat ekki komist að neinni annarri niðurstöðu. Það hefur legið fyrir um árabil að þessar reglur væru hluti af EES-samningnum og að Ísland hefði ekki samið um neina undanþágu frá þeim. Þegar Alþingi hafnaði því að afnema bannið við innflutningi á fersku kjöti var það klárt ásetningsbrot á EES-samningnum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Ólafur bendir á að það séu hagsmunir íslensks matvælaiðnaðar að fá að flytja ferskvöru á markað í öðrum Evrópuríkjum og þá gangi ekki að ætla að hindra innflutning sambærilegrar vöru hér á landi. „Það er fráleitt að á sama tíma og til dæmis sauðfjárbændur hyggjast nýta sér þau tækifæri sem felast í útflutningi á fersku lambakjöti skuli íslensk stjórnvöld ætla að standa í vegi fyrir innflutningi á sambærilegri vöru hér á landi, sem hefur staðist heilbrigðiseftirlit samkvæmt sömu reglum og gilda á Íslandi. Innflutningur á fersku kjöti eykur úrval af ferskri gæðavöru og er neytendum til hagsbóta. Það er ekki eftir neinu að bíða með að afnema þetta bann,“ segir Ólafur.