FA spyr um útboð á farmiðakaupum ríkisins

24.10.2014

Félag atvinnurekenda hefur skrifað Ríkiskaupum bréf og óskað upplýsinga um stöðu áforma um að bjóða út farmiðakaup ríkisins í millilandaflugi á nýjan leik.

 

Forsaga málsins er sú að árið 2012 sögðu Ríkiskaup upp rammasamningi við Icelandair og Iceland Express um flugsæti til og frá Íslandi. Kærunefnd útboðsmála hafði þá ítrekað komizt að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á síðarnefnda flugfélaginu með gerð samninga ríkisins við Icelandair um utanlandsferðir ríkisstarfsmanna.

 

Um leið og Ríkiskaup sögðu upp rammasamningnum tilkynnti stofnunin að hún hygðist höfða mál fyrir dómstólum til ógildingar úrskurðar kærunefndarinnar. Það mál var aldrei höfðað og stendur úrskurður nefndarinnar því óhaggaður.

 

Jafnframt tilkynntu Ríkiskaup að stofnunin hygðist bjóða út farmiðakaup ríkisins á nýjan leik. Ekkert hefur frétzt af því útboði. Flest bendir til að ríkið kaupi langstærstan hluta flugmiða vegna utanlandsferða ríkisins af Icelandair, án útboðs eða samnings um afslætti. Með því er bæði farið illa með skattfé og keppinautum í millilandaflugi mismunað.

 

Framkvæmdastjóri FA hefur því skrifað forstjóra Ríkiskaupa og farið góðfúslega fram á upplýsingar um stöðu útboðsins sem boðað var og hvenær þess er að vænta að það komi til framkvæmda.

 

Bréf framkvæmdastjóra FA til Ríkiskaupa

Tilkynning Ríkiskaupa frá 3. september 2012

Nýjar fréttir

Innskráning