FA tekur undir tilmæli Samkeppniseftirlitsins

22.10.2015
Keflavíkurflugvöllur þrengri
Mynd: Hansueli Krapf

Félag atvinnurekenda fagnar niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem birt var í dag, um að núverandi fyrirkomulag á úthlutun afgreiðslutíma fyrir flugvélar á Keflavíkurflugvelli feli í sér samkeppnishindranir. Félagið tekur ennfremur undir tilmæli Samkeppniseftirlitsins til stjórnvalda, um að þau grípi þegar í stað til aðgerða til að leiðrétta þessa stöðu. Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hvatti nýverið til hins sama.

„Hér er um að ræða mjög afdráttarlausa og vel rökstudda niðurstöðu. Þetta er í raun áfellisdómur yfir stjórnvöldum sem hafa ekkert gert til að greiða fyrir samkeppni á þessum markaði sem er einn sá mikilvægasti fyrir samfélag okkar,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. Hann bendir á að Samkeppniseftirlitið fari hörðum orðum bæði um opinbera hlutafélagið Isavia og um Samgöngustofu, en í tilmælum SE til innanríkisráðuneytisins segir: „Af samskiptum sínum við Samgöngustofu og Isavia getur Samkeppniseftirlitið ekki dregið aðra ályktun en að þessir opinberu aðilar hafi neikvætt viðhorf til samkeppni eða geri sér ekki grein fyrir þeim miklu hagsmunum sem felast í því að virk samkeppni ríki á flugmarkaði.“

„Þetta er staðfesting á því sem allir gátu svo sem séð,“ segir Ólafur. „Þetta fyrirkomulag er að eyðileggja samkeppni í flugi til og frá landinu. Það þýðir tap neytenda sem fá dýrari vöru, tap samfélagsins sem fær færri ferðamenn og tap þeirra fyrirtækja sem berjast við að keppa þrátt fyrir að kerfið vinni gegn þeim. Ef stjórnvöld vilja vernda hagsmuni neytenda og almennings þá munu þau bregðast við þessu hratt og með afgerandi hætti. Stjórnvöld sem bera hagsmuni samkeppninnar fyrir brjósti munu auðvitað leggja hart að sér til að ryðja úr vegi þeim samkeppnishindrunum sem eru til staðar. Við tökum því eindregið undir hvatningu Samkeppniseftirlitsins til innanríkisráðherra.“

Ólafur bætir við að Samkeppniseftirlitið sýni þarna mikilvægi sitt í samfélagi okkar. „Framlag stofnunarinnar er hins vegar lítils virði ef það er hunsað af yfirvöldum eins og hefur ítrekað gerst, og er skemmst að minnast þess hvernig Alþingi gekk í sumar þvert á tilmæli Samkeppniseftirlitsins um breytingar á fyrirkomulagi tollkvóta á búvörum. Hér er um svo stórt hagsmunamál að ræða að ráðherra getur ekki hunsað ábendingar Samkeppniseftirlitsins.“

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning