Tollasvindl er óþolandi

19.10.2020

Grein Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra FA, á Vísi 19. október 2020.

Forsvarsmenn landbúnaðarins hafa undanfarið vakið athygli á gruni um tollasvindl, vegna þess að tölum um útflutning landbúnaðarvara frá Evrópusambandinu til Íslands og innflutningstölum Hagstofunnar beri ekki saman. Talsmenn Bændasamtakanna – og reyndar líka Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra – hafa ýjað að því að hið meinta svindl hafi eitthvað með samning Íslands og ESB um gagnkvæma fríverzlun með landbúnaðarvörur að gera. Það er reyndar ekki svo; óprúttnir aðilar hafa stundað svindl á tollum svo lengi sem misháir tollar hafa verið lagðir á vörur í milliríkjaviðskiptum. Nú er svo komið að ekki er hægt að svindla á neinum tollum nema í viðskiptum með landbúnaðarvörur; þær eru einu vörurnar sem íslenzka ríkið leggur tolla á.

Býr til ólögmætt samkeppnisforskot
Félag atvinnurekenda er meðal annars hagsmunasamtök innflytjenda á matvörum. Út frá okkar bæjardyrum séð er tollasvindl í milliríkjaviðskiptum algjörlega óþolandi. Að sama skapi er óþolandi þegar látið er í veðri vaka að svindl sé útbreitt meðal innflytjenda. Flestir innflytjendur á matvörum eru með allt sitt á hreinu, fara í einu og öllu eftir lögum og reglum og greiða sína skatta og skyldur, þar á meðal tolla. Samkeppnisstaða fyrirtækja, sem fara þannig í einu og öllu að lögum, skerðist að sjálfsögðu ef einhverjir aðrir komast upp með að greiða ekki það sem þeim ber og öðlast þannig ólögmætt samkeppnisforskot.

Sameiginlegt hagsmunamál
Upplýsingar um meint misræmi í út- og innflutningstölum komu fram í viðtali við Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtakanna, í Morgunblaðinu 18. september síðastliðinn. Gunnar hafði þá jafnframt eftir Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra að fundið yrði út úr því í hverju misræmið lægi. Félag atvinnurekenda lét það verða sitt fyrsta verk að senda fjármálaráðuneytinu skeyti og taka undir það með Bændasamtökunum að afleitt væri ef inn- og útflutningstölum bæri ekki saman. Félagið bauð ennfremur fram aðstoð sína og félagsmanna sinna við ráðuneytið og tollstjóraembættið eftir því sem kostur væri. Greinarhöfundur hafði svo samband við Bændasamtökin til að útskýra að FA liti á það sem sameiginlegt hagsmunamál sitt og BÍ að komizt yrði til botns í málinu.

Engin viðbrögð hafa borizt frá ráðuneytinu eða stofnunum þess við erindi FA og má taka undir það með Oddnýju Steinu Valsdóttur, varaformanni Bændasamtakanna, sem hún skrifaði á Vísi um að athugun á málinu gengi hægt. Rétt skal nefnilega vera rétt. Fólk getur haft mismunandi skoðanir á réttmæti hárra tolla rétt eins og annarra skatta og eflaust væri það þannig að skattsvik væru ekki eins útbreidd ef skattarnir væru lægri – en það er grundvallarforsenda fyrir sanngjarnri samkeppni að allir fari að lögum í þessu efni eins og öðrum.

Grein Ólafs á Vísi

Nýjar fréttir

Innskráning