Vetrarfríin oft streituvaldur fremur en samverustund

25.02.2015

Vetrarfrí á skáFramkvæmdastjóri FA hefur gagnrýnt í fjölmiðlum skort á samráði við atvinnulífið vegna vetrarfría grunnskóla og skipulagsdaga í grunnskólum og leikskólum.

„Vetr­ar­fríið hef­ur alltaf verið ákveðið vanda­mál. Það kem­ur á tíma þar sem oft er mikið að gera í fyr­ir­tækj­um og í staðinn fyr­ir að búa til ánægju­leg­ar sam­veru­stund­ir með fjöl­skyld­unni, eins og er vafa­laust mark­miðið, þá býr þetta í ýms­um til­vik­um til stress, vesen og leiðindi,“ seg­ir Ólaf­ur Stephen­sen í samtali við mbl.is.

Í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni gagnrýndi Ólafur jafnframt fyrirkomulag skipulagsdaga í grunn- og leikskólum, en foreldrar neyðast oft til að taka sér frí á slíkum dögum. „Það kemur fólki í atvinnulífinu spánskt fyrir sjónir að skólar séu eina sortin af fyrirtækjum þar sem er ekki hægt að halda uppi þjónustu af því að það er verið að skipuleggja vinnuna. Við hin búum bara ekkert við þann lúxus,“ sagði Ólafur.

Umfjöllun mbl.is

Viðtal við Ólaf Stephensen á Bylgjunni

Nýjar fréttir

Innskráning