Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi Aflvéla og Burstagerðarinnar, var kjörinn formaður Félags atvinnurekenda á aðalfundi félagsins í dag. Hann tekur við af Guðrúnu Rögnu Garðarsdóttur, framkvæmdastjóra Atlantsolíu, sem hefur verið formaður félagsins undanfarin fjögur ár.
Friðrik er fæddur 1963. Hann hefur rekið fjölskyldufyrirtækið Burstagerðina frá 1983. Hann stofnaði Besta ehf., fyrirtæki í sölu á hreinlætisvörum, 1987 og rak það til 2006. Árið 2004 stofnaði hann Aflvélar, sem sérhæfði sig í fyrstu í sölu og þjónustu á vinnuvélum til snjóruðnings og hreinsunar og vélum til hreinsunar innanhúss en býður nú breitt úrval af vélum og tækjum, m.a. landbúnaðarvélum. Friðrik var eigandi Spodriba í Lettlandi, stærsta framleiðanda á efnum og hreinsiefnum til heimilisnotkunar í Eystrasaltsríkjunum, á árunum 2006-2021.
Friðrik er með MBA-próf frá Háskólanum í Reykjavík og flugstjórnarpróf. Hann sat í stjórn FA sem meðstjórnandi 2010-2014 og aftur frá 2019 til 2025.
Auk Friðriks voru kjörnir tveir meðstjórnendur á aðalfundinum. Dagný Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co. og Eldvarnamiðstöðvarinnar, kemur ný inn í stjórn. Lilja Dögg Stefándóttir, framkvæmdastjóri lyfjasviðs Icepharma, var endurkjörin.
Auk þeirra sitja í stjórn, kjörin á aðalfundi í fyrra, þau Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Innness, Guðmundur R. Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Xco, og Anna Kristín Kristjánsdóttir, stjórnarmaður og eigandi í Hvíta húsinu, varaformaður FA.
