Fundur um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu 28. apríl

21.04.2026

Félag atvinnurekenda er á meðal bakhjarla fundar um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu, ásamt ýmsum öðrum samtökum og fyrirtækjum. Yfirskrift fundarins er Greiðari leið – hugmyndir óskast og verður hann haldinn á Hilton við Suðurlandsbraut 28. apríl. Fundurinn hefst kl. 9:00 og stendur til 10:45. Hann er öllum opinn en skráning nauðsynleg á hlekknum hér að neðan.

Efnt er til fundarins til að stuðla að upplýstri umræðu um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar um miðjan maí. Efnt verður til samtals um hugmyndir og lausnir, sem til þess eru fallnar að greiða úr umferð á höfuðborgarsvæðinu fyrir alla fararmáta. Þá verður leitað svara hjá oddvitum flokkanna við því, hvaða viðhorf þeir hafa til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu. 

Í aðdraganda ráðstefnunnar verður teflt fram forvitnilegum staðreyndum um samgöngumál, tekið hús á oddvitum flokka og helstu sérfræðingum og leitað viðhorfa hjá íbúum í ólíkum hverfum höfuðborgarsvæðisins. Dagskrána má sjá hér að neðan.

Að fundinum stendur Hugvekjan, sem hefur að markmiði að stuðla að opnu samtali og upplýstri umræðu um mál sem eru efst á baugi í samfélaginu. Samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu eru mikið hagsmunamál fyrir þjóðina. Greiðari samgöngur draga úr vinnutapi, lækka flutningskostnað, efla skilvirkni, stuðla að meiri framleiðni og ýta undir hagvöxt. Þær eru því forsenda samkeppnishæfni þjóða, heilbrigðrar verðmætasköpunar og bættra lífsgæða. 

Á meðal bakhjarla eru Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Félag atvinnurekenda. Einnig eru á meðal bakhjarla fyrirtækin við Suðurlandsbraut 4-32, meðal annars Eik hf., Eirvík fasteignir ehf., Glitur ehf., Heimar hf., Investo ehf., Kísiliðjan hf., Lyfjaver ehf., Mænir Reykjavík ehf., Mörkin fasteign ehf., Reitir hf., Róshildur ehf., SB. 18 ehf., Stemmi ehf. og Þorgrímur fasteignafélag ehf. Einnig BL, Hekla bílaumboð og Toyota á Íslandi.

Skráning á fundinn

Nýjar fréttir

Innskráning