Fyrirtæki gætu átt skaðabótakröfu á skipafélög

15.10.2014
Aðildarfélög FA kunna að eiga skaðabótakröfu á skipafélögin, sannist að þau hafi haft með sér ólöglegt samráð.
Aðildarfélög FA kunna að eiga skaðabótakröfu á skipafélögin, sannist að þau hafi haft með sér ólöglegt samráð.

Félag atvinnurekenda telur þær ásakanir á hendur stjórnendum og starfsmönnum skipafélaganna Eimskips og Samskips, sem fram koma í kæru Samkeppniseftirlitsins til sérstaks saksóknara, mjög alvarlegar. Samkeppniseftirlitið telur sig hafa rökstuddan grun um að fyrirtækin hafi haft með sér samráð um að halda uppi verði á skipaflutningum.

Mörg aðildarfyrirtæki Félags atvinnurekenda eru stórir viðskiptavinir skipafélaganna. Félagið hefur lengi verið þeirrar skoðunar að talsvert vantaði upp á virka samkeppni á sjóflutningamarkaðnum. Sannist þær ásakanir, sem Samkeppniseftirlitið ber á skipafélögin, er ljóst að mörg fyrirtæki munu eiga skaðabótakröfu á þau.

„Félag atvinnurekenda hvetur félagsmenn sína til að fylgjast vel með þessu máli og að leita tilboða í flutninga sína til að sannreyna að samráð sé ekki fyrir hendi og samkeppni sé virk,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags

Nýjar fréttir

Innskráning