Guðrún Ragna endurkjörin formaður FA

10.02.2023

Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, var endurkjörin formaður Félags atvinnurekenda á aðalfundi félagsins í gær. Fjórir félagsmenn sóttust eftir tveimur sætum meðstjórnenda, sem kosið var í á fundinum. Þau Lilja Dögg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjasviðs Icepharma, og Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi Aflvéla og Burstagerðarinnar, hlutu bæði endurkjör og er stjórnin því óbreytt að aðalfundi loknum.

Auk þeirra sitja í stjórn, kjörin á síðasta aðalfundi, þau Anna Kristín Kristjánsdóttir, einn af eigendum Hvíta hússins, Guðmundur R. Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Xco, og Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Innness.

Stjórn FA að loknum aðalfundinum á Grand Hóteli. Frá vinstri: Lilja Dögg Stefánsdóttir, Guðrún Ragna Garðarsdóttir formaður, Leifur Örn Leifsson, Anna Kristín Kristjánsdóttir, Friðrik Ingi Friðriksson og Guðmundur R. Sigtryggsson. Mynd: Sigurjón Ragnar

Nýjar fréttir

Innskráning