Gullhúðunarhugsunin

04.02.2026

„Endahnútur“ Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA í Viðskiptablaðinu 4. febrúar 2026.

Félag atvinnurekenda hefur fagnað frumvarpi Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að afnema skuli jafnlaunavottunina í núverandi mynd og taka í staðinn upp einfaldara kerfi. Í stað þess að fyrirtæki með fleiri en 25 starfsmenn séu skyldug til jafnlaunavottunar eða -staðfestingar þurfi fyrirtæki með fleiri en 50 starfsmenn að skila jafnlaunaskýrslum.

Þetta yrði til verulegra bóta. Jafnlaunavottunin hefur reynzt kostnaðarsöm og íþyngjandi, einkum fyrir minni fyrirtækin, án þess að tekizt hafi að sýna fram á að hún hafi bein áhrif á kynbundinn launamun. FA hefur þó talið að ganga ætti lengra í að létta regluverkið. Í pípunum er Evrópulöggjöf, sem kveður á um sambærilega skyldu fyrirtækja til að skila inn jafnlaunaupplýsingum og er í frumvarpi ráðherra, hin svokallaða launagegnsæistilskipun Evrópusambandsins, sem verður innleidd á Íslandi innan tíðar. Þar miðast lagaskyldan við 100 starfsmenn eða fleiri. FA hefur bent á að með því að miða við 50 manns sé í raun verið að gullhúða Evrópureglurnar; þyngri byrðar verði lagðar á lítil íslenzk fyrirtæki en álíka stór fyrirtæki í öðrum EES-ríkjum.

Vísir bar sjónarmið FA undir dómsmálaráðherrann, sem svaraði: „Fjöldi fyrirtækja með fleiri en 100 starfsmenn þótti of lítill á Íslandi til að sjónarmiðin um launajafnrétti stæðu ef farið yrði í 100 manna fyrirtæki og stærri eingöngu.“

Þetta er í hnotskurn hugsunarhátturinn sem liggur að baki gullhúðun Evrópuregluverksins. Velmeinandi embættis- og stjórnmálamenn horfa á EES-reglurnar og segja: „Nei, með þessum stærðarmörkum ná kvaðirnar yfir svo fá íslenzk fyrirtæki. Við verðum að lækka mörkin og kasta netinu víðar.“ Niðurstaðan verður alltaf sú að lítil íslenzk fyrirtæki búa við þyngra regluverk en sambærileg fyrirtæki í nágrannalöndunum, sem þau eru jafnvel í beinni samkeppni við. Og það þyngist bara og þyngist.

Ríkisstjórnin segist stefna að einföldun regluverks og afnámi gullhúðunar. Ráðherrarnir verða að sýna það í verki.

Nýjar fréttir

4. febrúar 2026

Innskráning