Hæsti fröllutollurinn lækkar úr 76% í 46% – en er áfram Íslandsmet

17.12.2022

Svolítill áfangasigur í tollamálum vannst þegar Alþingi samþykkti í vikunni að breyta tollskránni þannig að tollur á frönskum kartöflum lækkar úr 76% – sem var hæsti prósentutollur tollskrárinnar – í 46%. Það er reyndar áfram hæsti prósentutollurinn á innflutningi og því ekki nákvæmt sem segir í greinargerð með breytingartillögunni um lækkun tollsins að þar með sé Íslandsmetið úr sögunni. Félag atvinnurekenda hefur lengi lagt til að fröllutollurinn verði aflagður með öllu.

Eins og FA hefur bent á, hefur hinn hái tollur nánast útilokað innflutning frá öðrum ríkjum en þeim sem gert hafa fríverslunarsamninga við Ísland, en í samningum við Evrópusambandið og Kanada hefur tollurinn verið lækkaður í 46%. Um leið þýðir þetta að breytingin sem gerð var á Alþingi mun ekki hafa í för með sér neina verðlækkun fyrir neytendur; þeir munu áfram greiða um 300 milljónir króna á ári í tolla af frönskum kartöflum.

Líklegasta breytingin sem leiðir af lækkun hámarkstollsins er að innflutningur á frönskum kartöflum frá Bandaríkjunum muni aukast, en á tímabilinu janúar 2020 til júlí 2022 voru aðeins fluttar inn bandarískar franskar fyrir átta milljónir króna. Innflutningur frá Kanada og ESB nam á sama tíma 1,7 milljörðum króna.

„Lækkun tolla er alltaf jákvætt skref en þetta skref hefði mátt vera mun stærra,“ segir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA. „Fyrir buddu neytenda breytir þetta því miður litlu en það er gott bæði fyrir neytendur og verzlunina að hægt sé að flytja inn vörur frá fleiri löndum, sem eykur úrvalið. Hitt er svo annað mál að 46% tollur er áfram alltof hár tollur. Það eru engin rök fyrir því að leggja háa tolla á innflutning til að vernda framleiðslu sem á sér ekki stað lengur innanlands.“

Viðtal við Ólaf Stephensen á Vísi/Bylgjunni

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning