Hæsti verndartollur tollskrárinnar verndar ekkert lengur – stjórnvöld hvött til að fella hann niður

24.08.2022
Afnám tollsins myndi lækka franskar kartöflur verulega í verði.

Félag atvinnurekenda hefur sent matvælaráðherra og fjármálaráðherra erindi og hvatt stjórnvöld til að beita sér fyrir afnámi 76% tolls á franskar kartöflur, í framhaldi af fréttum um að eini íslenski framleiðandinn sé hættur framleiðslu á vörunni. Hæsti verndartollurinn í íslensku tollskránni verndar þá nákvæmlega ekki neitt.

Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, greindi frá því í morgun að Þykkvabæjar ehf. væri hætt framleiðslu á frönskum kartöflum. Í bréfi sínu til Svandísar Svavarsdóttur og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra rifjar félagið upp fyrri tillögur sínar um að tollurinn verði felldur niður, en hann hefur um árabil eingöngu verndað framleiðslu þessa eina fyrirtækis, sem þar að auki framleiddi franskar að hluta til úr innfluttu hráefni.

Ekki réttlætanlegt að senda neytendum reikninginn
Í ljósi þess að hæsti verndartollurinn í íslenzku tollskránni verndar ekkert lengur, hvorki innlenda kartöfluframleiðslu né eina innlenda iðnfyrirtækið sem framleiddi franskar kartöflur, hvetur FA matvælaráðherra og fjármálaráðherra eindregið til að beita sér fyrir því strax og Alþingi kemur saman í haust að tollurinn verði felldur úr gildi. Hægt er að hafa ýmsar skoðanir á réttmæti þess að neytendum sé sendur reikningurinn fyrir vernd íslenzkrar landbúnaðarframleiðslu, en það er með engu móti hægt að réttlæta að þeim sé sendur himinhár reikningur fyrir því sem ekkert er,“ segir í bréfi Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra til ráðherranna.

Stjórnvöld hljóta auk þess að telja það skyldu sína, á tímum er verðbólga er í sögulegum hæðum, að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lækka verð á neyzluvörum. Afnám tolls á franskar kartöflur er augljós leið til þess.

Franskar fluttar inn á 46-76% tolli
Undanfarin ár hafa um 95% franskra kartaflna, sem íslenskir neytendur leggja sér til munns, verið innflutt vara. Á franskar kartöflur leggst 76% tollur samkvæmt tollskrá og er það hæsti prósentutollur á matvöru sem hægt er að finna í tollskránni. Samkvæmt fríverslunarsamningum við Kanada og Evrópusambandið eru franskar kartöflur fluttar inn á lægri tolli, sem er þó eftir sem áður gífurlega hár, eða 46% og veldur því að neytendur greiða hærra verð fyrir vöruna sem því nemur. 

Blómleg snakkframleiðsla þótt snakktollurinn sé farinn
Í bréfi sínu til ráðherranna bendir FA á að tollurinn á franskar kartöflur er að flestu leyti hliðstæður 59% tolli á kartöflusnakk, sem var í gildi til áramóta 2017. Hann verndaði aðallega eitt fyrirtæki sem framleiddi snakk úr innfluttu hráefni, Stjörnusnakk. Alþingi felldi hann engu að síður úr gildi haustið 2016. Afleiðingin var sú að um áramótin 2017 lækkaði innflutt snakk í verði um 22-43%. Innlenda framleiðslan fékk vissulega harðari samkeppni, en ekki verður annað séð en að Stjörnusnakk sé enn í blómlegum rekstri. Eftir afnám tollsins hafa frumkvöðlar meira að segja sett á stofn nýtt snakkfyrirtæki, Ljótu kartöflurnar, sem framleiðir flögur úr íslenzkum kartöflum við góðan orðstír.

Uppfært 30. ágúst: FA hefur borist svar frá matvælaráðuneytinu, þar sem fram kemur að matvælaráðherra hafi ekki aðkomu að ákvörðun tolls fyrir franskar kartöflur, þar sem varan beri einungis verðtoll (ekki krónutölutoll að auki, eins og margar búvörur). Heyri slíkur innflutningur því undir valdsvið fjármálaráðherra. Engin svör hafa borist frá fjármálaráðuneytinu.

Bréf FA til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning