Stjórnendur fyrirtækja við Suðurlandsbraut og í Múlahverfi deildu hart á útfærslu fyrirhugaðra breytinga á Suðurlandsbraut á sameiginlegum fundi FA og Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) sl. föstudag. Þrennt stóð þar upp úr; áhyggjur af raski á framkvæmdatímanum, að fækkun akreina fyrir bílaumferð úr fjórar í tvær myndi hamla aðgengi að hverfinu og setja hagsmuni fyrirtækjanna í uppnám, og að fækkun bílastæða myndi valda vandræðum. Upptaka frá fundinum er í spilaranum hér að neðan og glærukynningar frummælenda neðst í fréttinni, auk mynda frá fundinum.
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, opnaði fundinn og ræddi að taka yrði tillit til sjónarmiða fyrirtækjanna í hverfinu, enda gætu fyrirhugaðar framkvæmdir haft mikil áhrif á aðgengi að verslun og þjónustu og rekstrarskilyrði fyrirtækja í hverfinu. Samkvæmt upplýsingum, sem teknar voru saman fyrir SVÞ og FA, starfa um 1.600 fyrirtæki á svæðinu, með um 5.400 starfsmenn.
Á fundinum kynntu fulltrúar Betri samgangna og borgarskipulags Reykjavíkur áformin um breytingar á Suðurlandsbrautinni, en þar á að bæta við akreinum fyrir borgarlínu, nýjum hjólastíg og göngubraut en fækka akreinum fyrir bílaumferð úr fjórum í tvær. Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu, fjallaði um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, Bjarni Rúnar Ingvarsson, deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg, fjallaði um forsögu Borgarlínu, og Ólöf Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri Borgarlínu, kynnti hönnun Borgarlínu um Suðurlandsbraut.
Byrjað á öfugum enda
Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers við Suðurlandsbraut fór yfir ýmsar áhyggjur og athugasemdir stjórnenda fyrirtækja í hverfinu. Hann ræddi m.a. ofangreindar áhyggjur fyrirtækjaeigenda af raski vegna framkvæmda, umferðarteppum og fækkun bílastæða. Hákon benti á að fækkun bílastæða við Suðurlandsbraut þýddi að fólk legði bifreiðum uppi í Múlahverfi, með tilheyrandi vandkvæðum fyrir fyritæki þar. Þá benti Hákon á að forsendur fyrir því að Suðurlandsbraut gæti verið aðeins ein akrein í hvora átt væru m.a. að til kæmu framkvæmdir eins og Miklubrautargöng og Sæbrautarstokkur. Þarna væri hins vegar verið að byrja á öfugum enda. Framkvæmdir við Suðurlandsbraut eiga að standa yfir 2027-2030, en mun lengra er í hinar framkvæmdirnar. Hákon sagði að hætt væri við töfum, og að umferðin færðist af Suðurlandsbraut í næstu götur og jafnvel inn á bílastæði fyrirtækja.
Hægt er að horfa á erindi Ólafar og Hákonar, auk umræðna á fundinum, í spilaranum hér að neðan.
Hákon nefndi að það hefði verið í umræðunni að ekki þyrfti bílastæðahús við nýja þjóðarhöll í Laugardal, en á sama tíma væri stefnt að fækkun bílastæða við Suðurlandsbraut. Bílastæðahús gæti nýst bæði Þjóðarhöllinni og fyrirtækjum í hverfinu. Hann benti einnig á að sérrými fyrir Borgarlínu gæti sem hægast verið norðan götunnar, í stað þess að vera á henni miðri eins og gert er ráð fyrir, og þá blasti ekki við að hjólastíg sunnar götunnar og göngubraut meðfram honum þyrftu að bætast við. Hjólastígur væri norðan götunnar nú þegar og gönguleið uppi við byggingarnar, þar sem bæta mætti aðgengi.
Yrði skoðað ef nýr meirihluti legði nýjar línur
Fundarmenn spurðu margs og voru almennt mjög gagnrýnir á áformin um breytingar á Suðurlandsbraut. Fulltrúar Betri samgangna og Reykjavíkurborgar voru m.a. spurðir hvort það væri mögulegt, að því gefnu að eftir komandi kosningar kæmi nýr borgarstjórnarmeirihluti með nýjar áherzlur, að útfæra Borgarlínu um Suðurlandsbraut með sérrými fyrir vagna hennar norðan götunnar og án þess að fækka akreinum fyrir bílaumferð. Bjarni benti á að það yrði ýmsum vandkvæðum bundið. Mögulega þyrfti að loka Engjateig, leysa þyrfti hæðarmun á milli Engjateigs og breikkaðrar Suðurlandsbrautar og ganga á svæði Laugardalsins. Það yrði áskorun að koma þessu við á svæðinu við Glæsibæ og austur frá Glæsibæ yrði ekki mikið pláss fyrir gróður, heldur yrði það fyrst og fremst hellur og malbik. Ólöf svaraði því til að slíkt myndi ekki samræmast stefnu Borgarlínu, það væri ekki góð þjónusta fyrir notendur Borgarlínunnar í fyrirtækjum sunnan Suðurlandsbrautar að þurfa að þvera fjórar akreinar til að komast í vagnana. Unnið væri með að hafa Borgarlínuna í miðju gatna. Spurningin var ítrekuð og svaraði Ólöf því til að ef nýr meirihluti legði nýjar línur, yrði það að sjálfsögðu skoðað.
Glærur Betri samgangna og Reykjavíkurborgar
Glærur Hákonar






























