Haustferð FA 22. október

08.10.2026

Félag atvinnurekenda efnir til haustferðar félagsmanna síðdegis fimmtudaginn 22. október. Þetta er annað árið í röð sem við förum slíka ferð með það að markmiði að hrista félagsmenn saman, auðvelda þeim að kynnast og miðla upplýsingum um fyrirtækin í félaginu. Haustferðin sem farin var í fyrra í Þorlákshöfn, á Selfoss og í Flóann tókst með miklum ágætum. Í könnun meðal félagsmanna í byrjun árs kom fram mikil ánægja hjá þeim sem fóru í ferðina, og jafnframt tillögur um að í ár yrði hún farin innan höfuðborgarsvæðisins.

Í ár heimsækjum við því tvö fyrirtæki í Hálsahverfi í Reykjavík, Ölgerðina og Ósa, móðurfélag Icepharma og Parlogis. Ölgerðin er elsti drykkjarvöruframleiðandi landsins, stofnuð 1913, og var einn af stofnfélögum FA (FÍS) fyrir 98 árum. Ósar og forverar félagsins, sem rekja sögu sína til 1919, hafa jafnframt verið í FA í áratugi. Bæði þessi grónu fyrirtæki eru í hópi þeirra framsæknustu í íslensku atvinnulífi og hafa frá mörgu að segja.

Dagskráin er eftirfarandi:

16.00   Mæting í Ölgerðina, Grjóthálsi 7-11.
16.10 Skoðunarferð um verksmiðju og vöruhús. Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar
17.00   Smakkað á framleiðsluvörum Ölgerðarinnar
18.00   Stysta rútuferð lífs ykkar, frá Grjóthálsi yfir á Lyngháls 13
18.10   Skoðunarferð og kynning á Ósum, Icepharma og Parlogis. Hörður Þórhallsson forstjóri Ósa
19.15   Kvöldverður í hinu frábæra mötuneyti Ósa, þar sem listakokkurinn Ingólfur Þorsteinsson ræður ríkjum. Félagsmenn greiða sjálfir fyrir kvöldverð. Það gjald verður mjög hóflegt og tilkynnt þegar þátttaka liggur fyrir.
21.00   Dagskrárlok

Við hvetjum félagsmenn eindregið til að skrá sig í ferðina hér að neðan.

Skráning í haustferð FA 22. október (#61)

Nýjar fréttir

8. október 2026

Innskráning