Icewear Magasín fær Njarðarskjöldinn

22.01.2016
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti Filipusi Th. Ólafssyni verslunarstjóra Icewear Magasíns Njarðarskjöldinn. Áshildur Bragadóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu afhenti honum blómvönd.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti Filipusi Th. Ólafssyni verslunarstjóra Icewear Magasíns Njarðarskjöldinn. Áshildur Bragadóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, afhenti honum blómvönd.

Icewear Magasín í Austurstræti hlýtur í ár Njarðarskjöldinn, hvatningarverðlaun til ferðamannaverslana í Reykjavík. Verðlaunin voru afhent í gær við athöfn í Hvalasýningunni við Fiskislóð. Að viðurkenningunum standa Félag atvinnurekenda, Reykjavíkurborg, Miðborgin okkar, Samtök verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide Ísland.

Njarðarskjöld­ur­inn var nú veitt­ur í tuttugasta sinn en mark­mið verðlaun­anna er að hvetja til bættr­ar og auk­inn­ar versl­un­arþjón­ustu við ferðamenn í Reykja­vík. Njörður, sem skjöld­ur­inn er kennd­ur við, var upp­haf­lega frjó­sem­isguð en síðar guð sæ­far­enda og sagður fé­sæll mjög. Sæ­far­end­ur þess tíma stunduðu gjarn­an kaup­skap og því við hæfi að kenna ár­leg hvatn­ing­ar­verðlaun til ferðamanna­versl­un­ar við guð sigl­inga og viðskipta.

Við til­nefn­ingu ferðamanna­versl­un­ar árs­ins er leit­ast við að verðlauna þá versl­un sem hef­ur náð hvað best­um sölu­ár­angri til er­lendra ferðamanna milli ára. Horft er til markaðs- og kynn­ing­ar­mála, svo sem aug­lýs­inga, vefs og út­lits al­mennt. Aðrir þætt­ir eru einnig skoðaðir sér­stak­lega svo sem þjón­ustu­lund, opn­un­ar­tími, merk­ing­ar um end­ur­greiðslu virðis­auka, lýs­ing, tungu­mála­k­unn­átta starfs­fólks og þekk­ing á sölu­vör­un­um.

Nýjar fréttir

Innskráning