Í tilefni af kínversku áramótunum 25. janúar, er ár rottunnar gengur í garð, efna Íslensk-kínverska viðskiptaráðið (ÍKV) og Kínversk-íslenska menningarfélagið (KÍM) til áramótafagnaðar fimmtudaginn 23. janúar á veitingahúsinu Tian á Grensásvegi. Nýárskvöldverður ÍKV og KÍM er orðinn árviss viðburður og jafnan vel sóttur. Borðhaldið hefst kl. 19.30.
Ræðumenn kvöldins verða þau Arnþór Helgason, fyrrverandi formaður KÍM og vináttusendiherra Íslands í Kína, og Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Feel Iceland. Þau segja hvort um sig frá upplifuninni af fyrstu heimsókn sinni til Kína, Arnþór árið 1975 og Hrönn 36 árum síðar, eða 2011.
![](https://atvinnurekendur.is/wp-content/uploads/2022/11/Arnthor-Helgason-200x300.jpg)
Níu rétta hlaðborð er í boði:
- Súpa: Suan La Tan((酸辣汤)
- Stökk Peking -önd (með hveitiköku, agúrku, vorlauk og sósu)(烤鸭。鸭饼,黄瓜,葱)
- Lambakjöt á mongólska vísu (自然羊肉)
- Vorrúllur(春卷)
- Kung pao-kjúklingur(宫宝鸡)
- Heimatilbúið tófú (家常豆腐)
- Steiktir dumplings (fylltar hveitibollur)( 煎饺子)
- Pönnusteikt grænmeti.(炒蔬菜)
- Djúpsteiktar rækjur (炸虾)
- Te (茶)
Hlaðborðið kostar 5.000 krónur á mann.
![](https://atvinnurekendur.is/wp-content/uploads/2022/11/Hronn-Margret-Magnusdottir-200x300.jpg)
Sætafjöldi er takmarkaður og eru félagsmenn því vinsamlegast beðnir um að panta fyrir þriðjudaginn 21. janúar. Pantanir má senda á netfangið bjarndis@atvinnurekendur.is.