Kaffikrókurinn: Næstu ár verða ár vélmennanna

17.11.2026

Gervigreind getur gjörbreytt samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja og gert þeim kleift að leysa verkefni sem áður kröfðust mun meiri mannafla. Næsta stóra tæknibyltingin verður hins vegar tilkoma vélmenna sem geta tekið að sér fjölbreytt störf, jafnvel verkefni sem hingað til hafa verið á hendi menntaðra iðnaðarmanna. Stefán Atli Rúnarsson, sérfræðingur í hagnýtingu gervigreindar, spáir því að árin 2027–2029 verði ár vélmennanna.

Stefán Atli er gestur nýjasta þáttar Kaffikróksins, hlaðvarpsþáttar Félags atvinnurekenda, þar sem hann ræðir við Ólaf Stephensen framkvæmdastjóra FA um tækifæri og áskoranir sem fylgja hraðri þróun gervigreindar. Stefán hefur kennt um 3.500 Íslendingum á námskeiðum um gervigreind og heldur sjálfur úti hlaðvarpinu Gervigreindarklúbbnum. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér að neðan og hlusta á Spotify.

Tíu manna fyrirtæki getur gert það sem fimmtíu manna fyrirtæki gerði áður
Stefán segir að gervigreindin sé þegar farin að gjörbreyta forsendum í rekstri fyrirtækja. Verkefni sem áður kröfðust tíu til fimmtán starfsmanna sé nú í sumum tilvikum hægt að leysa með þremur eða fjórum. Þetta eigi ekki síst við um endurtekin verkefni, svo sem bókhald, svör við fyrirspurnum og ýmsa upplýsingavinnslu. „Tíu manna fyrirtæki getur alveg gert það sem fimmtíu manna fyrirtæki gat áður fyrr, bara með auknum afköstum,“ segir Stefán.

Hann telur að í þessu felist mikil tækifæri fyrir lítil fyrirtæki til að keppa við mun stærri keppinauta. Gervigreind geti meðal annars nýst við birgðastýringu, markaðsgreiningar, gerð auglýsinga og sjálfvirk samskipti við viðskiptavini. Hún geti einnig auðveldað íslenskum fyrirtækjum að sækja á erlenda markaði, meðal annars með því að lækka kostnað við markaðssetningu og upplýsingavinnslu.

Stefán leggur sérstaka áherslu á svokallaða gervigreindarerindreka, sem geti sjálfstætt unnið verkefni og sinnt heilum verkferlum í stað þess að gervigreindin sé eingöngu notuð til að svara einstökum spurningum eða skrifa texta.

Hann ráðleggur stjórnendum lítilla fyrirtækja sem enn hafa ekki hagnýtt sér gervigreindina að byrja á að velja eitt endurtekið verkefni og prófa að sjálfvirknivæða það með gervigreind. Þannig geti fyrirtæki smám saman sparað verulegan tíma og nýtt starfskrafta sína betur.

Vélmennin næsta stóra byltingin
Stefán telur að þróun gervigreindar muni á næstu árum leiða til stórstígra framfara í vélmennatækni. Vélmenni með hendur og fætur muni geta sinnt sífellt fleiri verkefnum sem nú krefjast mannlegrar vinnu. Hann nefnir meðal annars þrif á hótelherbergjum, heimilisstörf og ýmis verkefni iðnaðarmanna, svo sem að smíða og mála. Hann bendir á að þegar séu til vélmenni sem geti unnið ýmis slík verk og að þróunin sé afar hröð.

„Frá 2027 til 2030 mun róbótabyltingin líka gerast rosalega hratt,“ segir Stefán og líkir þróuninni við útbreiðslu snjallsíma á árunum eftir að fyrsti iPhone-síminn kom á markað árið 2007. „Við munum sjá þetta 2027, 2028, 2029. Það verða ár róbótanna, eða vélmennanna,“ segir hann og telur að þar sé næsta stóra byltingin á ferðinni í kjölfar framfara í gervigreind.

Stefán telur jafnframt að þessar breytingar geti haft veruleg áhrif á vinnumarkaðinn og jafnvel leitt til aukins atvinnuleysis. Hann segir mikilvægt að stjórnvöld búi sig undir þær breytingar sem fram undan eru.

Í þættinum er einnig rætt um gagnaöryggi, persónuvernd, hæfni starfsfólks til að nýta gervigreind og hvernig fyrirtæki geti komið sér upp skynsamlegri stefnu um notkun hennar.

Nýjar fréttir

Innskráning