Kerfið frekar í liði með ríkisfyrirtækjum en sjálfstæðum atvinnurekendum

22.09.2016
ISP Vb 220916
Umfjöllun Viðskiptablaðsins í dag.

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda gagnrýnir ósanngjarna samkeppni ríkisfyrirtækisins Íslandspósts (ÍSP) við einkafyrirtæki í umfjöllun Viðskiptablaðsins í dag. Blaðið birti í síðustu viku umfjöllun um reikninga dótturfyrirtækisins ÍSP, ePósts, sem rekið er með miklu tapi og fjármagnað með lánum frá móðurfyrirtækinu. Ýmis einkafyrirtæki eru í beinni samkeppni við ePóst á sviði rafrænna póstsendinga.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir í samtali við Viðskiptablaðið að skýringar Íslandspósts á taprekstri og fjármögnun ePósts séu ekki sannfærandi. „Íslandspóstur er þarna augljóslega kominn út fyrir hlutverk sitt eins og það er skilgreint í póstlögum og er í beinni samkeppni við einkafyrirtæki sem eru að bjóða upp á svipaða þjónustu. Þarna er verið að reka dótturfyrirtæki með stuðningi og fjármögnun frá ríkisfyrirtækinu með hvínandi tapi með lánum sem bera að því er virðist ekki markaðsvexti. Þetta er bara svo augljóslega ósanngjörn og ójöfn samkeppni,“ segir Ólafur.

Ófullnægjandi upplýsingagjöf Íslandspósts
Félag atvinnurekenda telur Íslandspóst ástunda mjög ósanngjarna samkeppni við einkafyrirtæki. „Ríkið á bara ekkert að vera í samkeppnisrekstri. Þetta fyrirtæki á bara að sinna því sem því er með lögum falið að sinna en það að það sé að fara svona langt út fyrir sitt starfsvið í samkeppni við einkafyrirtæki er frá­ leitt. Sjálfstæðir atvinnurekendur eru verndaðir fyrir ósanngjarnri samkeppni frá ríkinu, bæði með ákvæðum póstlaga og ákvæð­um samkeppnislaga. Það er ekki heimilt að láta einkaréttarstarfsemina niðurgreiða samkeppnisstarfsemina og það verður líka að vera mjög rækilegur bókhaldslegur aðskilnaður. Það hefur verið sýnt fram á það í úttekt frá Fjárstoð, sem unnin var fyrir okkur, að öll framsetning upplýsinga í ársreikningum og ársskýrslu Íslandspósts er með þeim hætti að það er mjög erfitt, fyrir jafnvel sérfróða menn, að átta sig á því hvort póstlögum og samkeppnislögum er fylgt að þessu leyti,“ segir Ólafur í samtali við Viðskiptablaðið.

Hann bendr þar á að aðgreining afkomu mismunandi starfsþátta fyrirtækisins, þ.e. á milli samkeppnis- og einkaleyfisrekstrar, sé lögbundin en þessa framsetningu hafi ýmist vantað í ársreikningum Íslandspósts eða hún verið vísvitandi flækt þannig að ekki sé hægt að lesa það úr upplýsingum frá fyrirtækinu hvort það fari að lögum að þessu leyti. „Það er að okkar mati afskaplega ámælisvert. Við höfum tekið þetta upp við innanríkisráðuneytið, PFS og höfum líka leitað til ríkisendurskoðanda og beðið um að þess mál verði skoðuð. Enn sem komið er hefur það lítinn árangur borið – kerfið virðist frekar í liði með ríkisfyrirtækjum heldur en sjálfstæðum atvinnurekendum,“ segir Ólafur.

Engin svör frá PFS vegna undirverðlagningar
Í umfjöllun PFS er jafnframt rifjað upp erindi sem FA sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) í júní síðastliðnum. Þar var kvartað undan ólögmætri undirverðlagningu Íslandspósts. FA hefur ekki enn fengið svar við bréfinu. „Íslandspóstur er í samkeppni við einkafyrirtæki á mörgum vígstöðvum. Fyrirtækið hefur undanfarið troðið sér á inn á markað fyrir sælgætissölu, minjagripasölu, prentsmiðjurekstur, sendibílarekstur og þannig mætti áfram telja. Í pakkaflutningum er samkeppni en þetta er jafnframt hluti af alþjónustu Íslandspósts, þjónustu sem fyrirtækinu ber að bjóða upp á. Þá kveða lög líka á um að verðskráin skuli endurspegla raunkostnað að viðbættri hæfilegri álagningu. Með öðrum orðum, undirverðlagning er ekki leyfileg. Við sýndum það með dæmum að á sama tíma og þjónusta í einkarétti hækkar um tugi prósenta þá hækkar þjónusta í samkeppni ekki neitt og það þrátt fyrir að kostnaðarliðirnir hljóti að vera að verulegu leyti þeir sömu,“ segir Ólafur Stephensen í samtali við Viðskiptablaðið.

Hann bætir við að félagið hafi í öðru lagi leitað svara hjá PFS varðandi það hvort hún ætlaði ekki að beita sér fyrir því að Íslandspóstur yrði látinn uppfylla skilyrði í starfsleyfi sínu um að birta skilmála þjónustunnar m.a. um magnafslátt í pakkasendingum með einhverjum opinberum hætti en í dag sé ekki hægt að nálgast þessa skilmála. „Það er rökstuddur grunur um að fyrirtækið hafi náð til sín viðskiptum í pakkasendingunum með drjúgum afslætti frá verðskrá sem hefur ekki hækkað neitt í langan tíma. Það er mjög óeðlilegt og að okkar mati er það líka mjög óeðlilegt að við höfum ekki fengið nein svör við þessu erindi meira en þremur mánuðum eftir að það var sent.“

 

Nýjar fréttir

Innskráning