Könnun FA: Félagsmenn ánægðir með upplýsingagjöf vegna faraldursins

08.02.2021

Upplýsingaþjónusta Félags atvinnurekenda vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar er sú þjónusta félagsins sem félagsmenn hafa notað mest undanfarið ár og eru hvað ánægðastir með, samkvæmt könnun sem gerð var meðal félagsmanna. Í upphafi faraldursins markaði FA þá stefnu að standa þétt við bakið á félagsmönnum í efnahagskreppunni sem blasti við. Einn þáttur í því var að leggja mikla áherslu á tíða og virka upplýsingamiðlun til aðildarfyrirtækjanna um sóttvarnir og aðgerðir stjórnvalda til aðstoðar fyrirtækjum. Sendir voru 114 upplýsingapóstar til félagsmanna á árinu og haldnir fjarfundir til að skýra einstök mál nánar.

Eins og áður sagði er þetta sú þjónusta félagsins sem flestir sögðust nota, eða 93% svarenda. Af þeim sögðust 72% mjög ánægðir með þjónustuna og 22% ánægðir, samtals 94%. Þegar spurt var í opinni spurningu hvort FA hefði gert eitthvað vel á árinu nefndi um helmingur svarenda Covid-upplýsingaþjónustuna sérstaklega.

Lögfræðiþjónusta félagsins hefur um árabil verið sú þjónusta sem félagsmenn nota mest, en í þetta sinn sögðust 77% nota hana. Ánægjan með lögfræðiþjónustuna hefur aldrei verið meiri; 59% þeirra sem nota hana sögðust mjög ánægðir og 34% ánægðir, samtals 93%. Það kann að hafa eitthvað með það að gera að annað markmið FA í faraldrinum var að veita félagsmönnum framúrskarandi lögfræðiráðgjöf um nýtingu úrræða stjórnvalda vegna kórónuveirukreppunnar.

Félagið lagði einnig mikla áherslu á að miðla ábendingum og sjónarmiðum félagsmanna vegna heimsfaraldursins til stjórnvalda. 68% svarenda í könnuninni segjast hafa notað sér aðstoð við hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum og segjast 64% notendanna mjög ánægðir með þá þjónustu og 31% ánægðir, samtals 95%.

Smelltu á myndina til að stækka hana.

Yfir helmingur svarenda sagðist nýta þjónustu vegna kjarasamninga og var yfirgnæfandi meirihluti mjög ánægður eða ánægður með þjónustuna, eða 93%. Fáir félagsfundir voru haldnir á árinu vegna samkomutakmarkana, enda sögðust nú aðeins 49% félagsmanna hafa fylgst með félagsfundum. Af þeim sögðust 72% ánægðir eða mjög ánægðir.

Er spurt var um starf FA í heild sögðust 40% mjög sammála þeirri fullyrðingu að þeir væru ánægðir með það og 43% voru sammála, samtals 83%.

Ánægja félagsmanna með þjónustu og starf félagsins hefur sjaldan mælst meiri.

Könnunin var gerð dagana 27. janúar til 3. febrúar og var send í tölvupósti til 166 félagsmanna með beina félagsaðild. Svör bárust frá 62, eða 37,3%. Svarhlutfall í könnuninni undanfarin ár hefur verið á bilinu 31 til 64%. Ekki er hægt að rekja svörin til einstakra svarenda eða fyrirtækja.

 

Nýjar fréttir

Innskráning