Kynning á FráVinnu, veikindadagavaktaranum

16.03.2026

Við kynnum fyrsta viðburðinn okkar af þremur sem hafa það að markmiði að styrkja félagsmenn í að fást við veikindafjarvistir, fækka þeim og taka á vandamálum sem þeim fylgja. Fimmtudaginn 26. mars kl. 10 verður kynning á Teams á FráVinnu, veikindadagavaktaranum.

Trausti Harðarson

Veikindafjarvera er eitt af þeim málum sem flestir vinnustaðir takast á við – en oft er vandinn ekki sýnilegur fyrr en of seint. Í þessu erindi kynnir Trausti Harðarson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins CEO Huxun, fyrir félagsmönnum lausnina FráVinnu – Veikindadagavaktarann, sem hjálpar vinnustöðum að fá rauntímayfirsýn yfir veikindafjarveru og greina mynstur fyrr. Hann fer yfir hvernig einföld sjálfsskoðun starfsmanns, „spot on“ yfirsýn stjórnenda og skýr gögn geta stutt við betri samtöl, sanngjarnari meðferð mála, snemmtæk viðbrögð og markvissari ákvarðanir í rekstri. Kynningin tekur um 30 mínútur. Skráning er hér að neðan. Skráðir félagsmenn fá sendan hlekk til þátttöku með góðum fyrirvara.

Ath: Viðburðurinn var upphaflega boðaður 25. mars en hefur verið færður til 26. mars.

Skráning á kynningu: Veikindadagavaktarinn FráVinnu 26. mars 2026

Nýjar fréttir

Innskráning