Magnús Óli endurkjörinn formaður FA

15.02.2019
Nýkjörin stjórn. Frá vinstri: Guðrún Ragna Garðarsdóttir, Bjarni Ákason, Friðrik Ingi Friðriksson, Magnús Óli Ólafsson, Guðmundur Sigtryggsson og Anna Kristín Kristjánsdóttir.

Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness, var endurkjörinn formaður Félags atvinnurekenda á aðalfundi félagsins í gær. Magnús hefur verið formaður frá 2017 og byrjar nú seinna kjörtímabil sitt sem formaður, en því lýkur 2021.

Auk Magnúsar voru fjórir meðstjórnendur kjörnir á aðalfundinum. Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Bako-Ísberg og stjórnarmaður í Skakkaturni ehf. (Apple á Íslandi) og Friðrik Ingi Friðriksson,  forstjóri og eigandi í Aflvélum, Burstagerðinni og Spodriba, voru kjörnir til tveggja ára.

Guðmundur R. Sigtryggsson, framkvæmdastjóri XCO ehf., og Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu ehf., voru kjörin til eins árs.

Fyrir situr í stjórn Anna Kristín Kristjánsdóttir, stjórnarmaður og eigandi hjá Hvíta húsinu, en hún var kjörin á aðalfundi 2018 til tveggja ára.

Nánari upplýsingar um stjórn FA.

Nýjar fréttir

Innskráning