Íslensk-kínverska viðskiptaráðið efnir til opins málþings um samstarf Íslands og Kína í loftslagsmálum í tengslum við aðalfund ráðsins 31. maí næstkomandi. Málþingið hefst kl. 16 í fundarsal VR á jarðhæð Húss verslunarinnar, Kringlunni 7.
Sérfræðiþekking og tækni eins fámennasta ríkis heims nýtist nú í verkefnum, sem miða að því að auðvelda einu því fjölmennasta að uppfylla markmið sín í loftslagsmálum, heimsbyggðinni allri til hagsbóta. Á málþinginu verður m.a. fjallað um reynslu tveggja íslenskra fyrirtækja af verkefnum í Kína og sendiherra Kína fjallar um samstarfið frá sjónarhóli kínverskra stjórnvalda.
Dagskrá
16.00 Jónína Bjartmarz, formaður ÍKV og fundarstjóri
Málþingið opnað
16.05 He Rulong, sendiherra Alþýðulýðveldisins Kína á Íslandi
Ávarp
16.15 Ómar Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Carbon Recycling International
Reynsla CRI af markaðssókn með loftslagsvæna tæknilausn í Kína
16.30 Kristinn Ingi Lárusson, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Carbfix
Climate issues are a global matter but do we have global solutions?
16.45 Móttaka með léttum veitingum
Málþingið er öllum opið en skráning er nauðsynleg. Skráningarform hér að neðan.