Meirihluti félagsmanna FA ósammála áframhaldi aðildarviðræðna við ESB

26.03.2026

Minnihluti félagsmanna Félags atvinnurekenda telur að halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið, eða 39%, samkvæmt könnun sem gerð var meðal félagsmanna í síðasta mánuði. Meirihluti, eða 51%, er ósammála því að halda eigi viðræðum áfram. Lítill munur er á hópnum sem er hlynntur því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna (45%) og hinum, sem er andvígur þjóðaratkvæðagreiðslu (41%), samkvæmt niðurstöðum sömu könnunar. Sjá má nánara uppbrot á niðurstöðum á myndinni hér fyrir neðan.

Smelltu á myndina til að stækka hana.

Meirihluti andvígur ESB-aðild
Spurt hefur verið um Evrópu- og gjaldmiðlamál í könnunum FA meðal félagsmanna um árabil. Allan þann tíma hefur sá hópur, sem er andvígur aðild að Evrópusambandinu, verið mun stærri en sá sem er hlynntur aðild. Í könnuninni sem gerð var í febrúar segjast 20% sammála eða mjög sammála því að Ísland eigi að ganga í ESB, en 53% ósammála eða mjög ósammála.

Á tímabili, eftir að Ísland sótti um aðild að sambandinu eftir fjármálahrunið, sagðist meirihluti félagsmanna hlynntur framhaldi aðildarviðræðna, allt að 60%, en mikil breyting varð á því milli áranna 2016 og 2017, þegar stuðningur við framhald aðildarviðræðna fór úr 57% í 35%. Þeim sem voru andvígir framhaldi viðræðna fjölgaði þá úr 34% í 52%. Þessi hlutföll hafa haldist svipuð síðan.

Vaxandi trú á krónunni
Þeir sem segjast sammála eða mjög sammála þeirri fullyrðingu að krónan sé framtíðargjaldmiðill fyrir Ísland eru 46%, en ósammála eða mjög ósammála eru 35%. Trú á krónunni hefur farið vaxandi; til samanburðar töldu 42% í könnun ársins 2019 að hún væri framtíðargjaldmiðill fyrir Ísland en ósammála því sögðust 47%. Hópurinn, sem er andvígur upptöku evru við aðild að ESB, hefur um árabil verið stærri en hinn sem er hlynntur upptöku. Þannig segjast 45% nú ósammála eða mjög ósammála því að taka eigi upp evru við aðild að ESB, en 36% segjast sammála eða mjög sammála. Hópurinn sem telur að taka eigi einhliða upp annan gjaldmiðil hefur frá upphafi verið lítill og þeir félagsmenn miklu fleiri sem eru andvígir einhliða upptöku.

Könnunin var gerð dagana 3.-10. febrúar, á netinu. Svör bárust frá 61 af 153 félagsmönnum með beina félagsaðild, eða 40%. Vert er að geta þess að vegna smæðar úrtaksins eru tölfræðileg vikmörk í þessum könnunum há.

Nýjar fréttir

Innskráning