Morgunverðarfundur 6. mars: Breytt Suðurlandsbraut – böl eða blessun fyrir fyrirtækin?

17.02.2026

Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar og þjónustu boða stjórnendur fyrirtækja við Suðurlandsbraut og í Múlahverfi til opins fundar um fyrirhugaðar breytingar á Suðurlandsbraut í tengslum við lagningu Borgarlínu. Fundurinn er morgunverðarfundur og verður haldinn í fundarsal FA í Skeifunni 11B kl. 8.30 til 10 föstudaginn 6. mars.

Suðurlandsbraut og Múlar eru eitt helsta verslunar- og þjónustuhverfi Reykjavíkur. Þar starfa á annað þúsund fyrirtækja með um 5.500 starfsmenn. Fyrirhugaðar framkvæmdir og skipulagsbreytingar geta haft veruleg áhrif á umferð, aðgengi og rekstrarskilyrði verslunar og þjónustu í hverfinu.

Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, kynnir tillögur að breytingum sem nú eru til umsagnar í skipulagsgátt Reykjavíkur til 12. mars næstkomandi.

Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers, kynnir helstu áhyggjur, spurningar og sjónarmið fyrirtækja í hverfinu um áhrif breytinganna á starfsemi og aðgengi.

Að loknum framsöguerindum verða opnar umræður og fyrirspurnir. Léttur morgunverður er í boði.

Fundarstjórn annast Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

Skráning á fundinn á vef SVÞ

Nýjar fréttir

Innskráning