Munið að skrá ykkur á afmælismálþing ÍKV

26.10.2015
CHINA-BEIJING-LI KEQIANG-ICELAND-PM-SIGNING CEREMONY (CN)
Frá undirritun fríverslunarsamnings Íslands og Kína. Mynd: Utanríkisráðuneytið.

20 ára afmælismálþing Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins verður haldið næstkomandi fimmtudag, 29. október. Áhugasamir ættu að skrá sig í dag eða á morgun, því að sætafjöldi er takmarkaður og gott að við á skrifstofu FA höfum yfirsýn um mætinguna. Skráningarformið er hérna neðst á síðunni.

Dagskráin er eftirfarandi:

15.00       Ársæll Harðarson, formaður Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, býður gesti velkomna.

15.10       Liu Mingming, viðskiptafulltrúi kínverska sendiráðsins: Facilitating business opportunities through the FTA

15.25       Bergþór Magnússon, lögfræðingur á viðskiptasviði utanríkisráðuneytisins: Hvernig nýtast tækifærin í fríverslunarsamningi Íslands og Kína?

15.40       Jóhann Freyr Aðalsteinsson, tollasérfræðingur hjá Tollstjóra: Helstu áskoranir við framkvæmd fríverslunarsamningsins

15.55       Birgir Bjarnason, formaður FA og framkvæmdastjóri Íslensku umboðssölunnar: Áhrif fríverslunarsamningsins á útflutning til Kína

16.10       Sigtryggur R. Eyþórsson, framkvæmdastjóri Xco ehf: 40 ára reynsla af viðskiptum við Kína – hverju breytti fríverslunarsamningurinn?

16.30       Spurningar og svör

17.00       Móttaka í boði kínverska sendiráðsins

Fundarstjóri: Jónína Bjartmarz, stjórnarmaður í ÍKV

Málþingið verður haldið í húsnæði viðskiptadeildar sendiráðs Alþýðulýðveldisins Kína í Garðastræti 41, kl. 15-17 á fimmtudaginn.

 

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning