Næsta örnámskeið: Nýtum Starfsmenntasjóð verslunarinnar betur

13.05.2026

Næsta örnámskeið FA fjallar um Starfsmenntasjóð verslunarinnar, sem flestir félagsmenn greiða í, og hvernig megi nýta betur þau réttindi, sem fyrirtækin og starfsmenn þeirra eiga í sjóðnum. Námskeiðið verður haldið á Teams þriðjudaginn 2. júní kl. 10. Leiðbeinandi verður Selma Kristjánsdóttir, stjórnarmaður í SV og fagstjóri starfsmenntamála hjá VR.

Á námskeiðinu fá þátttakendur upplýsingar um hvers konar námskeið og fræðsla er styrkhæf í Starfsmenntasjóði verslunarinnar. Markmið sjóðsins er að styrkja fyrirtæki og einstaklinga til að stuðla markvisst að aukinni hæfni á vinnumarkaði.

Selma mun leiða félagsmenn FA í allan sannleika um ferli umsókna fyrirtækja og einstaklinga um styrk úr sjóðnum. Jafnframt verður farið markvisst yfir það hvernig verkefni eru styrkhæf og til hvaða ramma er horft við afgreiðslu umsókna.

Örnámskeið FA eru eingöngu fyrir félagsmenn og hafa notið mikilla vinsælda, ekki síst hjá stjórnendum, enda er hægt að afla sér þar hagnýtrar þekkingar á skömmum tíma. Námskeiðin eru haldin á netinu og taka 30 mínútur; 20 mínútna fyrirlestur og 10 mínútur fara í spurningar og umræður.

Skráning á námskeiðið er hér að neðan. Skráðir félagsmenn fá sendan hlekk til þáttttöku með góðum fyrirvara.

Skráning á námskeið: Nýtum Starfsmenntasjóð verslunarinnar betur 2. júní

Nýjar fréttir

Innskráning