Næsta örnámskeið FA fjallar, að beiðni margra félagsmanna, um sjálfbærniskýrslur og regluverkið sem skyldar fyrirtæki yfir tilteknum stærðarmörkum til að birta slíkar skýrslur. Námskeiðið verður haldið á Teams kl. 10 þriðjudaginn 10. júní. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Bára Mjöll Þórðardóttir stjórnendaráðgjafi hjá Langbrók og Soffía Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Langbrókar, en fyrirtækið sérhæfir sig meðal annars í ráðgjöf við fyrirtæki um samfélagsábyrgð og sjálfbærni.
Fjallað verður um Evrópuregluverkið um sjálfbærniskýrslur, til hvaða fyrirtækja það nær og hvaða skyldur það leggur á fyrirtækin. Jafnframt verður farið yfir hvaða tækifæri felast í þeirri vinnu sem tengist sjálfbærniskýrslunum varðandi t.d. kortlagningu á rekstrar- og orðsporsáhættu fyrirtækja. Þá verður rætt um áform framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í kjölfar Draghi-skýrslunnar svokölluðu um að draga á ný úr reglubyrði á sviði upplýsingagjafar um sjálfbærni og hvaða áhrif þau áform eru líkleg til að hafa á regluverkið.
Félagsmenn FA þekkja orðið örnámskeiðaformið; námskeiðin eru haldin á netinu og taka nákvæmlega 30 mínútur; 20 mínútna fyrirlestur og 10 mínútur í spurningar og svör. Skráning á námskeiðið er hér að neðan. Skráðir félagsmenn fá sendan hlekk með góðum fyrirvara.