Námskeið 12. maí: Gervigreind í rekstri – tækifæri, verkfæri og samkeppnisforskot

05.05.2026

Í framhaldi af vel sóttu örnámskeiði FA um hagnýtingu gervigreindar í fyrirtækjarekstri, efnum við til framhaldsnámskeiðs, þar sem farið verður dýpra í málin, undir yfirskriftinni Gervigreind í rekstri – tækifæri, verkfæri og samkeppnisforskot. Leiðbeinandi er Stefán Atli Rúnarsson. Námskeiðið verður haldið í fundarsal FA í Skeifunni 11b hinn 12. maí kl. 9-11. Með þessu námskeiðshaldi vill FA koma til móts við óskir félagsmanna, sem fram komu í árlegri þjónustukönnun félagsins.

Á þessu hagnýta námskeiði fá þátttakendur skýra og aðgengilega innsýn í hvernig gervigreind er að umbreyta rekstri fyrirtækja í dag. Farið er yfir helstu tækifæri, raunveruleg dæmi úr atvinnulífinu og hvernig hægt er að nýta verkfæri á borð við ChatGPT og Claude til að auka skilvirkni, spara tíma og styrkja ákvarðanatöku.

Áhersla er lögð á praktíska notkun í daglegu starfi – allt frá textagerð og gagnavinnslu yfir í sjálfvirknivæðingu ferla. Námskeiðið hentar stjórnendum, sérfræðingum og öllum sem vilja skilja hvernig gervigreind getur skapað raunverulegt virði í rekstri.

Námskeiðsgjald er kr. 7.000 á mann. Félagsmenn, sem skrá sig hér að neðan, fá aðgang að stuttri könnun, sem þeir eru beðnir að fylla út til að leiðbeinandinn fái gleggri mynd af þörfum þeirra sem sækja námskeiðið.

Stefán Atli Rúnarsson er viðskiptafræðingur og fjölmiðlatæknir með áralanga reynslu í markaðsmálum, efnisgerð og stafrænum lausnum. Hann hefur haldið fjölda námskeiða um gervigreind fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök víðs vegar um landið. Hátt í 3.000 manns hafa setið námskeið hjá Stefáni þar sem hann fer yfir hvernig hægt er að nýta gervigreind á hagnýtan og aðgengilegan hátt – án þess að þurfa tæknilega sérþekkingu.

Skráning á námskeið: Gervigreind í rekstri 12. maí

Nýjar fréttir

Innskráning