Örnámskeið 31. mars: Verkfæri til að fást við veikindafjarveru

26.03.2026

Næsta örnámskeið FA verður á Teams 31. mars kl. 10 og fjallar um verkfæri til að fást við veikindafjarveru. Skráning er hér neðar á síðunni, en einnig er hægt að skrá sig á vinnustofu í næsta mánuði þar sem farið verður enn dýpra í málin.

Hilja Guðmundsdóttir

Veikindafjarvera er ein stærsta rekstraráskorun vinnustaða í dag. Oft er rætt um misnotkun og dvínandi vinnusiðferði en er vandinn svo einfaldur? Á þessu 20 mínútna rafræna örnámskeiði kafar Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Mental ráðgjöf, ofan í kjarna málsins með hagnýtar lausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Námskeiðið er með sniði sem félagsmenn FA þekkja; 20 mínútna erindi og 10 mínútur í spurningar og svör.

Það sem þú tekur með þér:

  • Nýja sýn: Af hverju „svartir sauðir“ eru of einföld skýring á flóknum vanda.
  • Raunverulegar orsakir: Hvað segja rannsóknir og reynsla um fjarveru á litlum vinnustöðum?
  • 3 verkfæri sem þú getur notað strax:
    1. Skýrari rammi: skýr samtalsrammi og gagnsæi í væntingum
    2. Stutt regluleg innlit: helsta forvarnartæki stjórnenda
    3. Snemmtæk íhlutun: Gríptu inn í áður en fjarvera verður að langvarandi vanda.

Fyrir hverja? Eigendur, framkvæmdastjóra og stjórnendur aðildarfyrirtækja FA.

Fyrirlesari: Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og hefur þjálfað og handleitt yfir 1.000 stjórnendur í viðverustjórnun og krefjandi samtölum.

Viltu ganga lengra? Í lok erindis verður kynnt hagnýt vinnustofa fyrir þá sem vilja innleiða þessar aðferðir af krafti og er í boði fyrir aðildarfyrirtæki FA, sjá umfjöllun hér að neðan.

Skráðu þig á örnámskeiðið:

Skráning á námskeið: Verkfæri til að fást við veikindafjarveru 31. mars 2026

Vinnustofa 14. apríl kl. 9-12 í fundarsal FA:
Viðverustjórnun og -samtöl: Frá stefnu til framkvæmdar

Hagnýt vinnustofa fyrir eigendur og stjórnendur aðildarfyrirtækja

Á smærri vinnustöðum vegur hver fjarverudagur þungt. Spurningin er ekki hvort fjarvera komi upp, heldur hvernig þú bregst við henni. Á þessari þriggja klukkustunda vinnustofu fer Hilja Guðmundsdóttir hjá Mental ráðgjöf með þér í saumana á því hvernig á að taka á málum af festu, sanngirni og fagmennsku.

Markmið vinnustofunnar:

  • Draga úr óþarfa fjarveru og lágmarka rekstraráhættu.
  • Styrkja ábyrgðarmenningu þar sem eftirfylgni er skýr.
  • Efla öryggi stjórnenda í erfiðum samtölum og ákvarðanatöku.

Hvað verður unnið með?
Vinnustofan er blanda af markvissri fræðslu, raunverulegum dæmum úr íslensku atvinnulífi og verklegum æfingum. Unnið verður með:

  • Hvenær á að grípa inn í? Greining á mynstrum (misnotkun vs. kerfisbrestur).
  • Hvernig andleg líðan hefur bein áhrif á afköst og viðveru.
  • Skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni viðverusamtala.
  • Sálræna fyrstu hjálp: Beiting verkfæra til að styðja við andlega líðan og afköst.

Áherslan er ekki á „mjúka nálgun“, heldur á ábyrgð, skýrleika og árangur. Þú ferð heim með skýran ramma og verkfæri sem hægt er að innleiða strax í eigin fyrirtæki.

Hagnýtar upplýsingar

  • Tími: 3 klukkustundir í húsnæði FA í Skeifunni 11 B
  • Leiðbeinandi: Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og helsti sérfræðingur Mental í viðverustefnum og stjórnun.
  • Þátttökugjald: Félag atvinnurekenda niðurgreiðir námskeiðið fyrir sína félagsmenn:
    • 1 þátttakandi – 10.000 kr.
    • 2 þátttakendur – 8.500 kr. á mann.
    • 3 eða fleiri – 7.000 kr. á mann.

      (Gert er ráð fyrir að vinnuveitandi greiði gjaldið. Vsk. ekki innifalinn).

Skráðu þig á vinnustofuna:

Skráning á vinnustofu: Viðverustjórnun og -samtöl 14. apríl 2026

Viðbót: Hóphandleiðsla (valkvætt framhald)
Til að styðja við innleiðingu viðverustjórnunar og -samtala býðst þátttakendum að sækja tvær rafrænar hóphandleiðslur á næstu mánuðum eftir vinnustofuna.

Þar gefst færi á að:

  • ræða raunveruleg mál og áskoranir
  • fá faglega leiðsögn
  • nýta reynslu jafningja
  • fínstilla innleiðingu

Handleiðslan getur verið valkvæð viðbót eða hluti af heildarpakka.

Nýjar fréttir

Innskráning