Ráðherra fari að þriggja ára gömlum tilmælum Samkeppniseftirlitsins

25.11.2015

FiskvinnslaAðalfundur Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ), samstarfsfélags FA, skorar á sjávarútvegsráðherra að fara að þriggja ára gömlum tilmælum Samkeppniseftirlitsins um að grípa til aðgerða til að draga úr samkeppnishindrunum í sjávarútvegi, m.a. vegna tvöfaldrar verðmyndunar á sjávarfangi.

Í ályktun fundarins er jafnframt sett fram sú krafa að gjaldtaka fiskmarkaða af kaupendum sé gegnsæ og taki ávallt mið af raunverulegum kostnaði við veitta þjónustu hverju sinni.

Á aðalfundinum, sem haldinn var um síðustu helgi, var kosin ný stjórn og varastjórn og er forysta SFÚ nú þannig skipuð:

Stjórn

Jón Steinn Elíasson, formaður
Aðalsteinn Finsen
Albert Svavarsson
Rúnar Björgvinsson
Þorgrímur Leifsson
Kristján Berg
Mikael Símonarson

Varastjórn

Steingrímur Leifsson
Grétar Finnbogason
Gunnar Örn Örlygsson
Sigurður Örn Arnarson

Ályktun fundarins í heild

Frétt af aðalfundinum á vef SFÚ

Álit Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2012

Nýjar fréttir

Innskráning