Ríkisendurskoðun staðfestir samkeppnisbrot

25.06.2019

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst, sem birt var í dag, er mikilvægt veganesti fyrir stjórnvöld að mati Félags atvinnurekenda. FA setur þó fyrirvara við ýmsar niðurstöður skýrslunnar.

Spurningum ósvarað
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir að það valdi ákveðnum vonbrigðum að Ríkisendurskoðun skuli ekki veita afdráttarlausari svör við þeirri spurningu fjárlaganefndar Alþingis hvort lögbundinn aðskilnaður einkaréttar og samkeppnisrekstrar hafi verið með fullnægjandi hætti í rekstri Íslandspósts. „Þeirri spurningu er í raun áfram ósvarað hvaðan fjármagnið hefur komið, sem hefur runnið til margra misráðinna fjárfestinga Íslandspósts í samkeppnisrekstri undanfarin ár og hverjir bera ábyrgð á þeim röngu ákvörðunum. Það er verulegur ljóður á annars ágætri úttekt,“ segir Ólafur.

Skekkt samkeppnisstaða
Í skýrslunni kemur hins vegar fram að það fyrirkomulag, að einkaréttur á bréfum undir 50 grömmum standi undir öllum sameiginlegum og föstum kostnaði sem tengist honum en samkeppnisrekstur beri enga hlutdeild í sameiginlegum föstum kostnaði jafnvel þótt hann nýti sér sömu framleiðsluþættina, skekki augljóslega samkeppnisstöðu keppinauta Íslandspósts. „Ekki verður annað séð en að með þessu staðfesti Ríkisendurskoðun í raun alvarleg samkeppnisbrot í rekstri Íslandspósts. FA telur mikilvægt að breytingar verði gerðar á rekstri Íslandspósts til að rétta af þessa stöðu,“ segir framkvæmdastjóri FA.

Eigendastefnan taki á samkeppni við einkaaðila
FA fagnar þeirri tillögu Ríkisendurskoðunar að stjórnvöld móti eigendastefnu fyrir Íslandspóst, en hún er í samræmi við ábendingar félagsins. Ríkisendurskoðun nefnir að í þeirri vinnu þurfi að taka til athugunar hvort fela eigi öðrum en félaginu að sinna einum eða fleiri starfsþáttum þess. FA leggur áherslu á að stjórnvöld setji skýr ákvæði um það í eigendastefnu Íslandspósts að svo lengi sem fyrirtækið sé í ríkiseigu dragi það sig út úr samkeppni við einkaaðila á margvíslegum mörkuðum.

Gengur ekki að eftirlit sé í ólestri
Félag atvinnurekenda telur einnig ljóst af skýrslu Ríkisendurskoðunar að opinbert eftirlit með Íslandspósti sé í ólestri. Félagið tekur undir þá tillögu ríkisendurskoðanda að ráðuneyti og eftirlitsstofnanir þurfi að túlka eftirlitsheimildir og -skyldur sínar gagnvart Íslandspósti ohf. með sama hætti og að gagnkvæmur skilningur sé á hlutverki hvers og eins. Upp á þetta hefur stórlega vantað, eins og FA hefur ítrekað bent á. „Fjármálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppniseftirlitið hafa ítrekað bent hvert á annað þegar keppinautar Íslandspósts hafa kvartað undan viðskiptaháttum fyrirtækisins. Ríkisendurskoðun tekur undir með okkur að þetta gangi ekki lengur,“ segir Ólafur.

Óábyrgar fjárfestingar
Hann segir að skýrslan staðfesti að Íslandspóstur hafi ráðist í fjárfestingar, sem fyrst og fremst gagnast samkeppnisrekstrinum, án þess að reksturinn hafi staðið undir þeim. Þá sé það álit Ríkisendurskoðunar að alltof margt fólk starfi hjá Íslandspósti miðað við þann samdrátt sem hafi orðið í kjarnastarfsemi félagsins undanfarinn áratug. „Stór hluti starfsmanna Íslandspósts er í vinnu við verkefni sem ríkið á ekki að vera að sinna,“ segir Ólafur.

Afkoma einkaréttar innan alþjónustu, skv. yfirliti á bls. 63 í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Samdráttur í bréfasendingum að fullu bættur
FA dregur í efa þá niðurstöðu Ríkisendurskoðunar að samdráttur í bréfasendingum hafi ekki verið bættur Íslandspósti að fullu með hækkun gjaldskrár og vísar þar í yfirlit í skýrslunni sjálfri. „Afkoma einkaréttar árin 2016-2018 sýnir svo ekki verður um villst að tekjurnar voru umfram það sem lög gera ráð fyrir og notendur ofrukkaðir árin 2016-2017, auk þess sem afkoma þess starfsþáttar var góð árið 2018,“ segir Ólafur.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning