Samningar FA við iðnaðarmenn samþykktir

02.04.2024

Tveir kjarasamningar FA við iðnaðarmenn innan Rafiðnaðarsambands Íslands hafa verið samþykktir og gilda því frá 1. febrúar sl.

Stjórn FA samþykkti samningana fyrir sitt leyti á fundi sl. þriðjudag. Í dag lauk kosningu um kjarasamningana. Samningur við RSÍ vegna rafiðnaðarmanna var samþykktur með tæplega 74% atkvæða, en kjörsókn var 34,6%. Samningur FA og SÍA við Grafíu, aðildarfélag RSÍ, vegna grafískra hönnuða var samþykktur með 85% atkvæða en kjörsókn var 29,4%.

Báðir samningar eru aðgengilegir undir flipanum „kjaramál“ hér á vefnum. Nú hefst vinna við uppfærslu aðalkjarasamninga með áorðnum breytingum.

Samningur FA við RSÍ vegna rafiðnaðarmanna

Samningur FA/SÍA við Grafíu vegna grafískra hönnuða

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning