Sandur í gangverkinu – morgunfundur 9. nóvember um vandamál í alþjóðlegu aðfangakeðjunni

02.11.2021
Þátttakendur í fundi FA og viðskiptaráðanna. Gunnar Már, Valdimar, Daníel, Kjartan Örn, Hrönn Margrét, Ólafur Johnson og Ólafur Stephensen.

Gífurlegar hækkanir á flutningskostnaði, hækkandi innkaupsverð vöru, seinkanir í alþjóðlegum flutningum og jafnvel vöruskortur blasa nú við fyrirtækjum í milliríkjaviðskiptum. Heimsfaraldur kórónuveirunnar og fleiri ytri áföll hafa ruglað gangverk alþjóðaviðskipta. Af hverju stafa þessi vandkvæði í alþjóðlegu aðfangakeðjunni, hverjar eru afleiðingar þeirra og hvenær sjáum við fyrir endann á þeim? Við leitum svara á fundi Félags atvinnurekenda og millilandaviðskiptaráða FA, sem haldinn verður á Icelandair Hotel Reykjavík Natura kl. 8.30-10 þriðjudaginn 9. nóvember.

Athugið að grímuskylda er á fundinum. Honum verður streymt, bæði á Facebook-síðu FA og á YouTube-rás félagsins.

Dagskrá:
 
Flöskuhálsar og hækkanir í heimsflutningum
Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri alþjóðlegu flutningsmiðlunarinnar DB Schenker á Íslandi
Flugfrakt í hæstu hæðum!
Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo
Eftirmálar heimsfaraldurs – hvenær mætast framboð og eftirspurn?
Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans


Í pallborði auk frummælenda: 

Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Feel Iceland og stjórnarmaður í Íslensk-kínverska viðskiptaráðinu
Ólafur Ó. Johnson, framkvæmdastjóri Ó. Johnson & Kaaber og Sælkeradreifingar og stjórnarmaður í Íslensk-taílenska viðskiptaráðinu

Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri SRX og Ormsson

Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA

Fundarboðendur eru Félag atvinnurekenda, Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Íslensk-taílenska viðskiptaráðið og Íslensk-evrópska verslunarráðið.

Boðið er upp á kaffi og te. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig hér að neðan.

Nýjar fréttir

Innskráning