Skattur sem eykur atvinnuleysi

08.01.2015

01109410328657d19309606150db89fcGrein Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, birt í Fréttablaðinu 8. janúar.

Tryggingargjaldið, skattur sem ríkið leggur á launagreiðslur fyrirtækja, hefur verið til umræðu að undanförnu. Ríkisvaldið hefur ekki staðið við samkomulag við atvinnulífið um að lækka tryggingargjaldið á nýjan leik þegar atvinnuleysi dvínaði.

Fyrr í vikunni benti hagfræðideild Landsbankans á að þeirri hugmyndafræði, sem á sínum tíma lá að baki atvinnutryggingargjaldsins, sem er hluti skattsins,  hefði ekki verið fylgt. Ætlunin hefði verið að gjaldið fylgdi kostnaði vegna atvinnuleysisbóta. Eftir að atvinnuleysi minnkaði á ný, væri munurinn á hlutfalli atvinnutryggingargjalds og atvinnuleysisprósentu hins vegar mun meiri en fyrir efnahagshrunið.

„Skattlagning á launagreiðslur í landinu hefur því aukist. Atvinnutryggingargjald er því í auknum mæli orðin tekjulind fyrir ríkissjóð. Aukin skattlagning launagreiðslna með þessum hætti dregur úr getu atvinnurekenda til að ráða nýja starfsmenn og því verður fjölgun starfa minni en ella,“ segir í Hagsjá Landsbankans.

Þarna liggur hundurinn grafinn; það er sérkennileg þversögn í því fólgin að fjármagna atvinnuleysistryggingar með skatti á launagreiðslur fyrirtækja. Háir launaskattar ýta nefnilega undir atvinnuleysi með því að þeir draga úr hvata fyrirtækja að bæta við sig fólki. Launaskattar koma sérstaklega illa við lítil og meðalstór fyrirtæki og fyrirtæki í verzlun og þjónustu, þar sem laun eru iðulega hátt hlutfall kostnaðar.

Félag atvinnurekenda hefur reiknað út að lækkun tryggingargjaldsins um eitt prósentustig gæti skapað fyrirtækjum svigrúm til að skapa allt að 1.700 ný störf. Tekjur ríkissjóðs myndu við slíka breytingu lækka um 7,5 milljarða, en lægra tryggingargjald ríkisins sem launagreiðanda og tekjuskattur þeirra sem þannig yrðu virkir á vinnumarkaði gætu skilað 4,5 milljörðum á móti.

Nettóáhrifin á ríkissjóð til skamms tíma væru þannig þrír milljarðar, en aðgerðin myndi jafnframt hafa þau áhrif að fjárfesting ykist, neyzla færi vaxandi og skuldir yrðu greiddar hraðar niður. Breytingin skapaði því jákvæð áhrif í hagkerfinu yfir lengra tímabil, sem ríkissjóður myndi hagnast á.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að tryggingargjaldið verði lækkað á kjörtímabilinu. Það olli atvinnulífinu vonbrigðum að við það skyldi ekki staðið í fjárlögum þessa árs. Nú er ekki ástæða til að bíða lengur með efndirnar.

Grein Ólafs Stephensen á Vísi

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning