Skylda til að skila jafnlaunaskýrslum miðist við 100 starfsmenn

22.01.2026

Félag atvinnurekenda fagnar frumvarpi Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að fella skyldu til jafnlaunavottunar úr lögum og taka þess í stað upp einfaldara kerfi, sem felur í sér að fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri skili jafnlaunaskýrslum til Jafnréttisstofu. FA gagnrýnir hins vegar ákvæði frumvarpsins um stærðarmörk og leggur til að skyldan til skýrsluskila miðist við 100 starfsmenn, til samræmis við jafnlaunatilskipun Evrópusambandsins, sem tekin verður upp í EES-samninginn innan tíðar.

Í núverandi löggjöf er gert ráð fyrir að fyrirtæki með 25 starfsmenn eða fleiri beri skyldu til að undirgangast jafnlaunavottun eða svokallaða jafnlaunastaðfestingu. Í frumvarpi ráðherra er gert ráð fyrir að skyldan miðist við 50 starfsmenn og ferlið sé líkara því sem kallast jafnlaunastaðfesting og stendur í dag fyrirtækjum með 25-50 starfsmenn til boða.

Gullhúðun skerðir samkeppnishæfni
Í umsögn sinni til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis bendir FA á að í greinargerð frumvarpsins komi fram að það sé að miklu leyti í samræmi við kröfur launagegnsæistilskipunar Evrópusambandsins nr. 2023/970, en vænta má þess að tilskipunin verði tekin upp í EES-samninginn og innleidd hér á landi. Aðeins er lauslega fjallað um tilskipunina í greinargerðinni. FA telur mikilvægt að halda því til haga að í tilskipuninni er miðað við að fyrirtæki með 100 starfsmenn eða fleiri séu skyldug að veita launaupplýsingar.

„FA ítrekar það sem félagið hefur í tvígang bent dómsmálaráðuneytinu á í vinnu þess við samningu frumvarpsins, að með því að setja viðmiðið um skyldu til skýrsluskila lægra en í tilskipuninni, þ.e. við fyrirtæki og stofnanir með 50 starfsmenn og fleiri, í stað þess að miða við 100 starfsmenn, er verið að „gullhúða“ tilskipunina. Með því er sköpuð sú hætta að íslenzk fyrirtæki búi að þessu leyti við strangari kröfur og meira íþyngjandi regluverk en fyrirtæki af sömu stærð í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Slík gullhúðun skerðir samkeppnishæfni íslenzks atvinnulífs,“ segir í umsögn FA.

Félagið rifjar upp að í skýrslu hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar, sem vísað er til í greinargerð frumvarpsins, er lögð áhersla á að fjarlægja gullhúðun úr íslensku regluverki. „Meginregla verði að ekki verði gengið lengra en lágmarkskröfur viðkomandi Evrópugerðar kveða á um nema í undantekningartilvikum, t.d. ef það væri í þágu íslenskra hagsmuna og drægi úr reglubyrði atvinnulífsins,“ segir í skýrslu hópsins. Að mati FA er það frávik frá ákvæðum tilskipunarinnar, sem frumvarpið felur í sér, augljóslega hvorki í þágu samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs né til þess fallið að draga úr reglubyrði atvinnulífsins miðað við ákvæði Evrópureglnanna.

Vinnulagið ekki í samræmi við aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða
„Ekki er í greinargerð frumvarpsins rökstutt með nokkrum hætti af hverju ætti að miða við 50 starfsmenn fremur en 100 eins og gert er í tilskipuninni. Þetta er ekki í samræmi við tillögur starfshóps utanríkisráðherra um aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða, sem kom út í maí 2024. Þar er lagt til að í greinargerð lagafrumvarpa sé greint með skýrum og aðgengilegum hætti frá því hvort ætlunin sé að beita gullhúðun Evrópureglna og að frávik frá EES-reglum séu sérstaklega rökstudd og lagt mat á áhrif þess að víkja frá reglunum. Þótt hér sé ekki með beinum hætti um innleiðingarfrumvarp að ræða, hefði að mati FA verið eðlilegt að fara eftir þessu vinnulagi og er miður að það hafi ekki verið gert,“ segir í umsögninni.

Úr skýrslu hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar.

Hærri stærðarmörk þýða minni ríkisútgjöld
FA leggur eindregið til að miðað verði við 100 starfsmanna markið, í stað 50, og bendir á að með því að fara þá leið ætti líka umtalsverður rekstrarkostnaður að sparast hjá ríkinu, þar sem Jafnréttisstofa þyrfti þá væntanlega færra starfsfólk til að taka við og yfirfara skýrslur um launaupplýsingar. „Eins og félagið hefur ítrekað vakið athygli stjórnvalda á (og hagræðingarhópurinn vitnaði sérstaklega til), þýðir þyngra eftirlit með fyrirtækjum líka fleiri ríkisstarfsmenn og dýrari stjórnsýslu,“ segir í umsögn FA um frumvarpið.

Umsögn FA í heild

Nýjar fréttir

Innskráning