Stjórn Félags atvinnurekenda hefur sent formönnum allra flokkanna sex, sem fengu menn kjörna á Alþingi í nýafstöðnum kosningum, ályktun um hagsmunamál fyrirtækjanna, sem FA telur brýnt að verði horft til við smíði stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Á meðal tillagna FA er afnám sérréttinda ríkisstarfsmanna og fækkun þeirra, að Samkeppniseftirlitinu verði fengið hlutverk við að fylgjast með því að opinberar stofnanir fari að lögum um útboð, að undanþágur mjólkur- og kjötvinnslu frá samkeppnislögum verði afnumdar, valdheimildir ríkissáttasemjara verði auknar og sett bremsa á hækkanir fasteignaskatta.
Eftirfarandi tillögur, sem stjórn FA samþykkti í gær, voru sendar formönnum flokkanna:
I. Jafnvægi og ráðdeild í ríkisfjármálum
Ný ríkisstjórn ætti að stefna að því að skila hallalausum fjárlögum án skattahækkana á fyrirtækin, en með rækilegri tiltekt á gjaldahlið ríkissjóðs. Jafnvægi í ríkisrekstrinum er gífurlega mikilvægt til að stuðla að áframhaldandi lækkun verðbólgu og vaxta. Til þess að ná markmiðum um hagræðingu og sveigjanleika í rekstri ríkisins þarf að fækka ríkisstarfsmönnum og breyta lögum sem veita þeim sérréttindi umfram launþega á almennum vinnumarkaði, á borð við uppsagnarvernd.
II. Eftirlit með opinberum innkaupum
Tryggja þarf að opinberar stofnanir fari að lögum um opinber innkaup með því að bjóða út innkaup á vörum og þjónustu. Slíkt er bæði mikilvægt fyrir buddu skattgreiðenda og samkeppni á markaði. Í dag vantar stórlega upp á eftirlit með því að stofnanir fari að lögum. FA leggur til að Samkeppniseftirlitið verði eflt og fái það hlutverk að fylgja eftir lögunum um opinber innkaup.
III. Afnám samkeppnishindrana
Ný ríkisstjórn ætti að stuðla að eflingu samkeppni og afnema samkeppnishindranir. Fella ætti úr gildi undanþágur mjólkur- og kjötiðnaðarins frá samkeppnislögum og tryggja að öll fyrirtæki starfi eftir sömu samkeppnislöggjöf. Fylgja þarf eftir áliti Samkeppniseftirlitsins um samkeppnishömlur í sjávarútvegi og afnema tvöfalda verðlagningu sjávarafla. Stjórnvöld þurfa að fylgja fast eftir ábendingum samkeppnisyfirvalda til að tryggja virka samkeppni á flutningamarkaði, sem er eitt stærsta hagsmunamál fyrirtækjanna.
IV. Lækkun tolla og lægra matvöruverð
Lækkun tolla á búvörum stuðlar að því að efla samkeppni og lækka verð á nauðsynjum. Færa á stuðning við landbúnaðinn í auknum mæli frá ómarkvissri og samkeppnishamlandi tollvernd og í gegnsæjar beinar greiðslur til bænda. Stjórnvöld eiga að hætta að rugla í tollskránni í þágu sérhagsmuna; slíkt skapar uppnám í milliríkjaviðskiptum Íslands og vinnur gegn fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi innflutningsfyrirtækja. Úthluta á tollkvótum, sem Ísland hefur samið um í milliríkjasamningum, án endurgjalds og koma í veg fyrir að innlendar afurðastöðvar geti boðið í tollkvóta og ýtt þannig upp verði á innflutningi.
V. Bremsa á hækkun fasteignaskatta
Ný ríkisstjórn ætti að taka til skoðunar tillögur FA, Samtaka íslenskra sveitarfélaga, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Húseigendafélagsins og Landssambands eldri borgara, um umbætur á kerfi fasteignaskatta. Á meðal þeirra er að sett verði eins konar skattabremsa á fasteignaskatta þannig að þótt skattstofninn, fasteignamatið, taki miklum breytingum verði hækkun og lækkun skattanna innan ákveðinna marka.
VI. Breytt vinnubrögð á vinnumarkaði
Nauðsynlegt er að stuðla að breyttum vinnubrögðum á vinnumarkaði, efla embætti ríkissáttasemjara og auka heimildir þess til að grípa inn í kjaradeilur í takt við það sem gerist í öðrum norrænum ríkjum. Tryggja þarf að opinberi markaðurinn hafi ekki forystuna varðandi breytingar á launum og öðrum starfskjörum, heldur fylgi eftir þeim kjarabótum sem fyrirtækin í landinu ráða við að semja um.
VII. Einföldun regluverks
Ráðast þarf í átak til að einfalda regluverk atvinnulífsins. Tryggja þarf að stjórnvöld fari eftir lögum um opinberar eftirlitsreglur og að ráðgjafanefnd um opinberar eftirlitsreglur verði skipuð á ný í samræmi við lögin. Fela ætti nefndinni það sérstaka verkefni að vinna gegn svokallaðri gullhúðun EES-reglna og gera tillögur um „afhúðun“, þ.e. að undið verði ofan af séríslenskum og íþyngjandi reglum, sem bætt hefur verið við Evrópureglur á undanförnum árum.
VIII. Traust lífeyriskerfi
Lífeyrissjóðirnir eru ein af undirstöðum velsældar á Íslandi, byggðir upp í góðu samstarfi atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar um árabil. Tryggja þarf að lífeyrissjóðirnir haldi sjálfstæði sínu og vinni fyrst og fremst að því markmiði að að hámarka lífeyri sjóðsfélaga og tryggja þeim ævilangan lífeyri.
Bréf FA til Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar