Stjórn FA: „Jöfnun“ gjalda yfirvarp fyrir skattahækkun

14.09.2017

Stjórn Félags atvinnurekenda samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í dag, 14. september 2017:

„Stjórn Félags atvinnurekenda fagnar áformum í fjárlagafrumvarpi ársins 2018 um að halda áfram á þeirri vegferð að samræma þrep virðisaukaskatts. Næsta skref í því ferli verður stigið árið 2019.

Stjórnin lýsir hins vegar vonbrigðum með að engar breytingar skuli fyrirhugaðar á tryggingagjaldi fyrirtækja. Hækkun tryggingagjalds átti á sínum tíma að vera tímabundin, til að fjármagna stóraukin útgjöld vegna atvinnuleysistrygginga eftir hrun. Nú er atvinnuleysisvandinn að stærstum hluta úr sögunni. Enn vantar hins vegar rúmlega 1,5 prósentustiga lækkun upp á að skatturinn verði jafnhátt hlutfall og fyrir hrun og skatttekjurnar eru notaðar til að fjármagna ýmis önnur útgjöld ríkissjóðs. Þetta gengur þvert á ítrekuð loforð stjórnmálamanna úr flestum flokkum undanfarin ár.

FA gagnrýnir einnig harðlega fyrirhugaðar hækkanir á áfengisgjaldi og eldsneytisgjöldum. FA lýsir skilningi á sjónarmiðum um að jafna gjöldin, en bendir á að það er ekki alltaf nauðsynlegt að jafna gjöld með því að hækka þau lægri. Það má líka lækka há gjöld eða jafnvel mætast á miðri leið. „Jöfnun“ af þessu tagi er aðeins yfirvarp fyrir hækkun skatta á fyrirtæki og einstaklinga.

Skattlagning á áfengi á Íslandi er löngu komin út úr öllu korti. Stjórnmálamenn virðast líta svo á að kaupendur þessarar einu neysluvöru megi skattpína endalaust. Gríðarleg hækkun á gjöldum á léttvín er ekki í neinu samræmi við málflutning núverandi stjórnarflokka um hóflega skattheimtu. Stjórn FA hvetur Alþingi til að endurskoða þessi áform.“

Nýjar fréttir

Innskráning