Sveitarfélög hvött til að lækka álagningarprósentur og endurskoða kerfi fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði

10.06.2025

Félag atvinnurekenda hefur sent öllum sveitarfélögum í landinu erindi, þar sem hvatt er til þess að álagningarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði verði endurskoðuð til að mæta hækkunum fasteignamats, þannig að sköttum á atvinnuhúsnæði verði haldið óbreyttum á milli ára. Þá eru sveitarfélögin hvött til uppbyggilegs samtals við ríkisvaldið um breytt kerfi skattlagningar fasteigna með minni sveiflur og meiri fyrirsjáanleika að markmiði.

FA vísar til fasteignamats fyrir árið 2026, sem birt var í lok síðasta mánaðar. Fasteignamat hækkar um 9,2% milli ára. Mat atvinnuhúsnæðis hækkar um 4,8%. Á höfuðborgarsvæðinu nemur hækkunin 3,8% en á landsbyggðinni um 9,1%.

Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði háir og hafa hækkað mikið
Á síðasta ári var álagður fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði um 36,6 milljarðar króna. Þá hafði álagningin hækkað að raunvirði um 50% á einum áratug, þrátt fyrir lækkanir sumra sveitarfélaga á álagningarprósentu á tímabilinu. Ætla má að álagður fasteignaskattur á atvinnueignir á þessu ári sé nær 39 milljörðum króna. Hlutfall fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði hefur á sama tíma hækkað úr um 0,7% af landsframleiðslu í 0,8% og er óvíða hærra í OECD-ríkjunum.

„Skattlagning, sem byggir á sveiflum í fasteignaverði en ekki raunverulegri afkomu fyrirtækja, leggst þungt á fyrirtæki, ekki sízt þau minni og meðalstóru,“ segir í erindi FA til sveitarfélaganna, sem Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri undirritar. „Félag atvinnurekenda telur því fulla ástæðu til að sveitarfélögin skoði að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði til að mæta hækkunum fasteignamatsins. Félagið hvetur jafnframt til uppbyggilegs samtals sveitarfélaganna og ríkisvaldsins um breytt kerfi skattlagningar fasteigna með minni sveiflur og meiri fyrirsjáanleika að markmiði.“

Ábendingar starfshóps um breytt kerfi verði skoðaðar
FA vísar í því efni til skýrslu starfshóps sem skipaður var fulltrúum FA, Sambands íslenzkra sveitarfélaga, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Húseigendafélagsins og Landssambands eldri borgara.  Skýrslan kom út snemmsumars 2023. Félagið vekur sérstaklega athygli á ábendingum hópsins um meðalhófsþak á prósentubreytingu fasteignaskatta milli ára og að svokallaður B-skattur (á húsnæði hins opinbera) og C-skattur (á annað atvinnuhúsnæði) verði sameinaðir, meðal annars til þess að draga úr samkeppnishindrunum sem leitt geta af ólíkri skattlagningu og matsaðferðum á húsnæði einkafyrirtækja og stofnana hins opinbera.

„Meðalhófsþak, sem líka hefur verið kallað skattabremsa, myndi gilda hvort sem er til hækkunar eða lækkunar. Þannig væru fasteignaeigendur varðir fyrir óhóflegum hækkunum fasteignamats, en sveitarfélögin hefðu líka vörn gagnvart verðfalli og lækkun matsins. Með þessu væri ennfremur komið í veg fyrir hvata sveitarfélaganna til að stuðla að óeðlilegum hækkunum fasteignaverðs,“ segir í erindi FA.

FA staldrar við fréttatilkynningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, þar sem greint er frá því að stofnunin hyggist einhliða endurskoða aðferðir við gerð fasteignamats atvinnueigna. Að mati félagsins er nauðsynlegt að slík vinna fari fram í breiðu samráði og samtali.

Skýrsla starfshóps FA, SÍS, HMS, Húseigendafélagsins og LEB

Nýjar fréttir

Innskráning