Stjórn Félags atvinnurekenda samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í dag:
Stjórn Félags atvinnurekenda lýsir miklum vonbrigðum með þá afstöðu ríkisstjórnarinnar að lækka ekki tryggingagjald til að skapa forsendur fyrir áframhaldandi stöðugleika á vinnumarkaði. FA hvetur stjórnvöld til að endurskoða þessa afstöðu.
Tryggingagjaldið var hækkað mikið til að standa undir bótagreiðslum vegna stóraukins atvinnuleysis eftir bankahrunið. Nú hefur atvinnuleysið snarminnkað og þá á að sjálfsögðu að lækka skattinn til samræmis í stað þess að taka tekjurnar af honum til annarra verkefna ríkisins.
Þegar horft er til sanngjarns skattaumhverfis fyrirtækja nægir ekki að horfa til dæmis á tekjuskatta. Tryggingagjaldið er ósanngjarn skattur sem hækkar eftir því sem starfsmenn eru fleiri og launakostnaður hækkar. Það vinnur þannig gegn því að fyrirtæki bæti við sig fólki og dregur úr getu þeirra til að standa undir launahækkunum. Lækkun tryggingagjaldsins er ein forsenda þess að varðveita megi þann frið og stöðugleika á vinnumarkaðnum sem um samdist fyrr á þessu ári.