Varaseðlabankastjóri fer yfir stöðuna í efnahagsmálum á fjarfundi

29.08.2022
Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri

Fyrsti félagsfundur Félags atvinnurekenda í haust fjallar um efnahagshorfur framundan og verður haldinn fimmtudaginn 8. september kl. 10. Gestur fundarins er Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri. Fundurinn verður haldinn með fjarfundaforritinu Zoom og eru félagsmenn beðnir að skrá sig hér að neðan til að fá sendan hlekk á fundinn.

Óhætt er að segja að margar spurningar um þróun efnahagsmála brenni á félagsmönnum FA. Er verðbólgutoppnum náð? Í hvaða tölu gætu stýrivextir endað? Hvaða áhrif geta samningar á almenna vinnumarkaðnum haft á verðbólgu og vexti? Áætlanagerð fyrir næsta ár er háð mörgum óvissuþáttum.

Rannveig Sigurðardóttir hefur starfað í Seðlabanka Íslands frá árinu 2002, sem varaseðlabankastjóri peningastefnu og aðstoðarseðlabankastjóri síðastliðin fjögur ár. Áður var hún staðgengill aðalhagfræðings og aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs bankans. Rannveig hefur jafnframt verið ritari peningastefnunefndar og sinnt verkefnum er lúta að samstarfi Seðlabankans og OECD. Áður starfaði Rannveig sem hagfræðingur BSRB og Alþýðusambands Íslands. Rannveig er hagfræðingur að mennt og lauk fil. kand. prófi og meistaraprófi í hagfræði frá Gautaborgarháskóla og stundaði þar doktorsnám.

Nýjar fréttir

Innskráning