Veikindafjarvera og viðverustjórnun: Viðburðir í mars og apríl

12.03.2026

Í síðustu könnun FA meðal félagsmanna kom fram mikill áhugi á meiri fræðslu og stuðningi við fyrirtækin í félaginu hvað varðar veikindafjarvistir og viðverustjórnun. Fundur félagsins í síðasta mánuði um veikindi og vinnumarkað var fyrsta skrefið í þá átt. Félagið hefur nú sett þrjá viðburði til viðbótar á dagskrá á næstu vikum, í því skyni að styrkja félagsmenn í að fást við veikindafjarvistir, fækka þeim og taka á vandamálum sem þeim fylgja. Viðburðirnir eru kynntir hér saman í kippu, en við munum kynna þá betur hvern og einn þegar nær dregur.

25. mars kl. 10 á Teams:
Kynning á FráVinnu, veikindadagavaktaranum

Trausti Harðarson

Veikindafjarvera er eitt af þeim málum sem flestir vinnustaðir takast á við – en oft er vandinn ekki sýnilegur fyrr en of seint. Í þessu erindi kynnir Trausti Harðarson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins CEO Huxun, fyrir félagsmönnum lausnina FráVinnu – Veikindadagavaktarann, sem hjálpar vinnustöðum að fá rauntímayfirsýn yfir veikindafjarveru og greina mynstur fyrr. Hann fer yfir hvernig einföld sjálfsskoðun starfsmanns, „spot on“ yfirsýn stjórnenda og skýr gögn geta stutt við betri samtöl, sanngjarnari meðferð mála, snemmtæk viðbrögð og markvissari ákvarðanir í rekstri. Kynningin tekur um 30 mínútur.

Skráðu þig á kynninguna:

Skráning á kynningu: Veikindadagavaktarinn FráVinnu 25. mars 2026

Örnámskeið 31. mars kl. 10 á Teams:
Verkfæri til að fást við veikindafjarveru

Hilja Guðmundsdóttir

Veikindafjarvera er ein stærsta rekstraráskorun vinnustaða í dag. Oft er rætt um misnotkun og dvínandi vinnusiðferði en er vandinn svo einfaldur? Á þessu 20 mínútna rafræna örnámskeiði kafar Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Mental ráðgjöf, ofan í kjarna málsins með hagnýtar lausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Námskeiðið er með sniði sem félagsmenn FA þekkja; 20 mínútna erindi og 10 mínútur í spurningar og svör.

Það sem þú tekur með þér:

  • Nýja sýn: Af hverju „svartir sauðir“ eru of einföld skýring á flóknum vanda.
  • Raunverulegar orsakir: Hvað segja rannsóknir og reynsla um fjarveru á litlum vinnustöðum?
  • 3 verkfæri sem þú getur notað strax:
    1. Skýrari rammi: skýr samtalsrammi og gagnsæi í væntingum
    2. Stutt regluleg innlit: helsta forvarnartæki stjórnenda
    3. Snemmtæk íhlutun: Gríptu inn í áður en fjarvera verður að langvarandi vanda.

Fyrir hverja? Eigendur, framkvæmdastjóra og stjórnendur aðildarfyrirtækja FA.

Fyrirlesari: Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og hefur þjálfað og handleitt yfir 1.000 stjórnendur í viðverustjórnun og krefjandi samtölum.

Viltu ganga lengra? Í lok erindis verður kynnt hagnýt vinnustofa fyrir þá sem vilja innleiða þessar aðferðir af krafti og er í boði fyrir aðildarfyrirtæki FA, sjá umfjöllun hér að neðan.

Skráðu þig á námskeiðið:

Skráning á námskeið: Verkfæri til að fást við veikindafjarveru 31. mars 2026

Vinnustofa 14. apríl kl. 9-12 í fundarsal FA:
Viðverustjórnun og -samtöl: Frá stefnu til framkvæmdar

Hagnýt vinnustofa fyrir eigendur og stjórnendur aðildarfyrirtækja

Á smærri vinnustöðum vegur hver fjarverudagur þungt. Spurningin er ekki hvort fjarvera komi upp, heldur hvernig þú bregst við henni. Á þessari þriggja klukkustunda vinnustofu fer Hilja Guðmundsdóttir hjá Mental ráðgjöf með þér í saumana á því hvernig á að taka á málum af festu, sanngirni og fagmennsku.

Markmið vinnustofunnar:

  • Draga úr óþarfa fjarveru og lágmarka rekstraráhættu.
  • Styrkja ábyrgðarmenningu þar sem eftirfylgni er skýr.
  • Efla öryggi stjórnenda í erfiðum samtölum og ákvarðanatöku.

Hvað verður unnið með?
Vinnustofan er blanda af markvissri fræðslu, raunverulegum dæmum úr íslensku atvinnulífi og verklegum æfingum. Unnið verður með:

  • Hvenær á að grípa inn í? Greining á mynstrum (misnotkun vs. kerfisbrestur).
  • Hvernig andleg líðan hefur bein áhrif á afköst og viðveru.
  • Skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni viðverusamtala.
  • Sálræna fyrstu hjálp: Beiting verkfæra til að styðja við andlega líðan og afköst.

Áherslan er ekki á „mjúka nálgun“, heldur á ábyrgð, skýrleika og árangur. Þú ferð heim með skýran ramma og verkfæri sem hægt er að innleiða strax í eigin fyrirtæki.

Hagnýtar upplýsingar

  • Tími: 3 klukkustundir í húsnæði FA í Skeifunni 11 B
  • Leiðbeinandi: Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og helsti sérfræðingur Mental í viðverustefnum og stjórnun.
  • Þátttökugjald: Félag atvinnurekenda niðurgreiðir námskeiðið fyrir sína félagsmenn:
    • 1 þátttakandi – 10.000 kr.
    • 2 þátttakendur – 8.500 kr. á mann.
    • 3 eða fleiri – 7.000 kr. á mann.

      (Gert er ráð fyrir að vinnuveitandi greiði gjaldið. Vsk. ekki innifalinn).

Skráðu þig á vinnustofuna:

Skráning á vinnustofu: Viðverustjórnun og -samtöl 14. apríl 2026

Viðbót: Hóphandleiðsla (valkvætt framhald)
Til að styðja við innleiðingu viðverustjórnunar og -samtala býðst þátttakendum að sækja tvær rafrænar hóphandleiðslur á næstu mánuðum eftir vinnustofuna.

Þar gefst færi á að:

  • ræða raunveruleg mál og áskoranir
  • fá faglega leiðsögn
  • nýta reynslu jafningja
  • fínstilla innleiðingu

Handleiðslan getur verið valkvæð viðbót eða hluti af heildarpakka.

Nýjar fréttir

Innskráning