Veikindi og vinnumarkaður – upptaka og myndir

27.02.2026

Opinn fundur Félags atvinnurekenda um veikindi og vinnumarkað, sem var haldinn á Grand Hóteli Reykjavík í gær í tengslum við aðalfund félagsins tókst einkar vel og var vel sóttur, bæði í sal og á netinu. Líflegar pallborðsumræður fóru fram að framsöguerindum loknum, með góðri þátttöku úr salnum. Umræðan hélt svo áfram yfir léttum veitingum að loknum fundi.

Hægt er að horfa á upptöku af fundinum í spilaranum hér að neðan, með glærum frummælenda. Einnig má horfa á stök erindi með því að smella á hlekkina að neðan.

Dagskrá fundarins:

Anna Kristín Kristjánsdóttir, varaformaður FA, setur fundinn
Ragnar Þór Ingólfssonfélags- og húsnæðismálaráðherra: Ávarp
Gunnar Ármannsson, stjórnarmaður og lögmaður:
Hverjar eru áskoranirnar varðandi nýtingu veikindaréttar og er unnt að breyta þeim?
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor í mannauðsstjórnun:
Veikindi og fjarvistir starfsfólks: hlutverk mannauðsstjórnunar í forvörnum og stuðningi
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR:
Traust, virðing og samvinna: samskipti launafólks og atvinnurekenda þegar heilsan brestur
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins:
Vinnum saman – Minnkum fjarvistir, fækkum vottorðum
Bjarni Kristjánsson, þjónustustjóri hjá Visku stéttarfélagi:
Aftur til starfa eftir veikindi eða slys
Pallborðsumræður með þátttöku frummælenda

Fundarstjóri var Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA

Glærur Gunnars
Glærur Gylfa
Glærur Höllu
Glærur Sigríðar Dóru
Glærur Bjarna

Hér að neðan má skoða myndir frá fundinum. Smellið til að stækka.

Nýjar fréttir

Innskráning