Verður reisn yfir stuðningi gestgjafans?

10.05.2023

Grein Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda á Vísi 5. maí 2023

Ísland verður í gestgjafahlutverki á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík síðar í mánuðinum. Þar verður aðalumræðuefnið samstaða lýðræðisríkja í Evrópu um áframhaldandi stuðning við Úkraínu í stríðinu við einræðisstjórnina í Moskvu.

Vísir hafði eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, þegar hún sótti fund leiðtoga norrænu ríkjanna með Zelenskíkj Úkraínuforseta fyrr í vikunni, að fyrir leiðtogafundinn myndi Ísland kynna aukinn stuðning við Úkraínu.

Úkraínumenn hafa ekki eingöngu beðið Vesturlönd um vopn og aðra hernaðaraðstoð, sérfræðiaðstoð á borð við þá sem Ísland veitir við sprengjuleit, og fjárhagslegan stuðning. Þeir hafa einnig farið fram á stuðning í formi afnáms viðskiptahindrana og tollfrjáls aðgangs útflutningsvara Úkraínu að evrópskum mörkuðum.

Tollfrelsi úkraínskra vara fellur senn úr gildi
Eins og önnur Evrópulönd ákvað Ísland í fyrra að fella niður tímabundið alla tolla á vörum frá Úkraínu með bráðabirgðaákvæði í tollalögum. Það ákvæði fellur úr gildi í lok þessa mánaðar, eftir rúmar þrjár vikur. Það hefur hins vegar sannað gildi sitt; innflutningur frá Úkraínu hefur vaxið umtalsvert undanfarið ár og hagur íslenzkra neytenda vænkazt um leið og við styðjum við úkraínskt efnahagslíf. Þannig hefur tollfrjáls úkraínskur kjúklingur verið boðinn í verzlunum á verði sem íslenzkir neytendur hafa ekki séð áður.

Bændasamtök Íslands voru eini umsagnaraðilinn sem lagðist gegn þessum stuðningi við Úkraínu, á þeim forsendum að tollfrjálsar úkraínskar landbúnaðarvörur gætu veitt íslenzkri framleiðslu samkeppni. Lítil reisn var yfir þeirri afstöðu til stuðnings Íslands við starfssystkini íslenzkra bænda, sem eiga í vök að verjast vegna stríðsátaka.

Hvar er frumvarpið um framlengingu?
Enn bólar ekkert á nýju frumvarpi fjármálaráðherra um áframhaldandi tollfrelsi úkraínskra vara, þótt skammur tími sé til stefnu að ganga frá endurnýjun lagaákvæðisins áður en það fellur úr gildi. Kannski er það vegna þess að Bændasamtökin halda áfram að kvarta yfir þessari takmörkuðu samkeppni við innlenda framleiðslu og hagsmunaaðilar í landbúnaðinum liggja þessa dagana í ráðherrum og þingmönnum stjórnarflokkanna að framlengja ekki bráðabirgðaákvæðið óbreytt.

Hversu mikil reisn væri yfir því að áframhaldandi tollfrelsi fyrir útflutningsvörur Úkraínu vantaði í aðgerðapakkann sem forsætisráðherrann ætlar að kynna eftir nokkra daga? Er það raunverulega svo að hagsmunir innlendra kjúklingaframleiðenda, fáeinna fyrirtækja í þröngu eignarhaldi, vegi þyngra en stuðningur við efnahagslíf okkar stríðshrjáða vinaríkis?

Grein Ólafs á Vísi

Nýjar fréttir

Innskráning