Vinna hafin við úttekt á stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið

22.11.2013

Í lok september sl. var tilkynnt að Alþýðusamband Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hygðust standa fyrir úttekt á aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þróun ESB og valkostum í efnahagsmálum.

 

Samtökin hafa nú undirritað samning við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands um ritstjórn og umsjón úttektarinnar.

 

Markmið verkefnisins er að leggja mat á stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins, að greina þau álitaefni sem eru til staðar og þá kosti sem eru í stöðunni. Þá verður fjallað um þróun Evrópusambandsins síðan aðildarviðræðurnar hófust með sérstakri áherslu á gjaldmiðilssamstarfið. Sérstakt mat verður einnig lagt á hvernig hefja mætti aðildarviðræður við ESB að nýju ef vilji stendur til þess. Þá verður lagt mat á EES samninginn og þá möguleika og takmarkanir sem í honum felast.

 

Alþjóðamálastofnun mun nýta breiðan hóp fagaðila með sérþekkingu á þeim ólíku sviðum sem tekin verða til skoðunar í úttektinni. Gert er ráð fyrir að vinnan fari fram á næstu fimm mánuðum og verður úttektin kynnt opinberlega næsta vor.

 

Það er mat þeirra samtaka sem að verkefninu standa að hlutlæg og greinargóð úttekt af þessu tagi sé lykilforsenda þess að hægt sé að meta hvaða valkostir séu best til fallnir að tryggja samkeppnishæfni atvinnulífsins til lengri tíma og um leið skapa sem best lífskjör fyrir heimilin í landinu.

 

 

Frekari upplýsingar um aðferðafræði og fyrirkomulag úttektarinnar má nálgast hér.

Nýjar fréttir

Innskráning