Vinnustofa um viðverustjórnun og -samtöl 14. apríl

07.04.2026

Hagnýt vinnustofa um viðverustjórnun og -samtöl fyrir eigendur og stjórnendur aðildarfyrirtækja FA verður haldin 14. apríl kl. 9-12. Skráning er hér að neðan.

Á smærri vinnustöðum vegur hver fjarverudagur þungt. Spurningin er ekki hvort fjarvera komi upp, heldur hvernig sé best að bregðast við henni og draga úr fjarveru. Á þessari þriggja klukkustunda vinnustofu fer Hilja Guðmunds hjá Mental ráðgjöf með þér í saumana á því hvernig á að taka á málum af festu, sanngirni og fagmennsku.

Markmið vinnustofunnar:

  • Draga úr óþarfa fjarveru og lágmarka rekstraráhættu.
  • Efla kunnáttu í að nýta Bradford-kvarðann sem og önnur gögn með gagnlegum hætti.
  • Styrkja stjórnendur í markvissri viðverustjórnun, allt frá forvörnum og mótun viðverustefnu til viðbragða, eftirfylgni og endurkomu starfsfólks.

Hvað verður unnið með?

  • Hvernig við nýtum Bradford og gögn til að greina mynstur og bregðast við.
  • Viðverustefnu og stjórnun, hvernig við mótum slíka stefnu, hvað slík stefna kemur inn á, hvernig við  framfylgjum henni og nýtum hana. 
  • Hvernig við opnum á samtöl um viðkvæm málefni, eins og andlega líðan og
  • Skipulagning, boðun, framkvæmd og eftirfylgni viðverusamtala og endurkomusamtala. 

Áhersla er lögð á ábyrgð, skýrleika og árangur. 

Þú ferð heim með skýran ramma og verkfæri sem þú getur nýtt strax. 

Hagnýtar upplýsingar:

  • Tími: 3 klukkustundir í húsnæði FA í Skeifunni 11 B
  • Leiðbeinandi: Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og helsti sérfræðingur Mental í viðverustefnum og stjórnun.
  • Þátttökugjald: Félag atvinnurekenda niðurgreiðir námskeiðið fyrir sína félagsmenn:
    • 1 þátttakandi – 10.000 kr.
    • 2 þátttakendur – 8.500 kr. á mann.
    • 3 eða fleiri – 7.000 kr. á mann.
Skráning á vinnustofu: Viðverustjórnun og -samtöl 14. apríl 2026

Nýjar fréttir

Innskráning