6.september 2012
Þann 6. september síðastliðinn boðaði Félag atvinnurekenda til haustfagnaðar. Veturinn er á næsta leyti og honum fylgja fjölmörg verkefni sem félagið hlakkar til að takast á við. Félagsmönnum var boðið í húsakynni Félags atvinnurkenda að Kringlunni 7, Hús verslunarinnar. Mætingin var góð og var andrúmsloftið létt og skemmtilegt. Félagið kynnti dagskrá vetrarins og nýja heimasíðu og boðið var upp á veitingar frá Tokyo sushi og veigar frá Vífilfell og Ölgerðinni. Dagskrá vetrarins er virkilega spennandi og fljótlega fara þau mörgu og fjölbreyttu námskeið af stað. Allar upplýsingar eru að finna hér á heimasíðu Félags atvinnurekenda. Dóri DNA, uppistandari úr grínhópnum Mið-Ísland, kom og fór með gamanmál. Félagsmenn voru almennt mjög ánægðir og mátti sjá mörg brosandi andlit og heyrðust mikil hlátursköll úr hópnum. Félag atvinnurekenda vill þakka gestum sínum fyrir komuna og hlakkar til samstarfsins í vetur.