Haustferð FA er orðin fastur liður í dagskrá félagsins. Ferð ársins var farin í gær og heimsóttir tveir félagsmenn, Ölgerðin og Ósar – lífæð heilbrigðis. Ferðin var bæði upplýsandi og skemmtileg eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Í Ölgerðinni sýndi Sturlaugur Jón Björnsson bruggmeistari félagsmönnum verksmiðju fyrirtækisins. Að lokinni skoðunarferð var m.a. smakkað á jólabjórum, sem eru væntanlegir í verslanir bráðlega. Guðmundur Pétur Ólafsson sölu- og markaðsstjóri sagði síðan frá sögu og stefnumörkun fyrirtækisins og svaraði spurningum félagsmanna, m.a. um samkeppnismál.
Hjá Ósum tók Lilja Dögg Stefánsdóttir, stjórnarmaður í FA og nýráðinn forstjóri Icepharma, á móti hópnum. Lyfjavöruhús Parlogis var skoðað undir leiðsögn Hálfdanar Gunnarssonar framkvæmdastjóra. Loks buðu Ósar til kvöldverðar í mötuneyti félagsins og Hörður Þórhallsson forstjóri fræddi félagsmenn um stefnumörkun og framtíðaráform fyrirtækisins.
Þess má geta að bæði Ölgerðin og Ósar hyggjast byggja ný vöruhús á Hólmsheiði, þar sem nýtt athafnahverfi mun rísa.
Við þökkum félagsmönnum okkar kærlega fyrir komuna og Ölgerðinni og Ósum fyrir höfðinglegar móttökur.






















