Myndir og upptaka frá morgunfundi um gervigreind í þjónustuverum

11.11.2026

Fundur FA og Halló um gervigreind í þjónustuverum fyrirtækja var vel sóttur. Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður FA fór yfir ýmis atriði sem vert er að hafa í huga við hagnýtingu gervigreindar í fyrirtækjum varðandi persónuvernd og gagnaöryggi. Andri Árnason hjá Halló fór yfir möguleika sem gervigreindin skapar í þjónustu við fyrirtæki og sýndi ýmis dæmi. Tinna R. Freysdóttir hjá Halló og Freyr Hákonarson hjá Kötlu Fitness tóku þátt í umræðum.

Hér að neðan eru myndir frá fundinum. Upptaka af fundinum er á innri vef félagsmanna FA undir „myndbönd“ og glærurnar undir flipanum „skjöl“.

Innri vefur FA

Nýjar fréttir

Innskráning