Grein Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA á Vísi 25. nóvember 2026
Það getur verið snúið að fá einhvern botn í svokallaða áfengisstefnu íslenzka ríkisins þessa dagana. Áfengislöggjöfin er augljóslega úrelt, enda samin fyrir um sex áratugum, og hefur til dæmis misst af samþykkt EES-samningsins og tilkomu internetsins. Tillögur um breytingar á henni til nútímahorfs hafa ekki átt meirihlutafylgi að fagna á Alþingi.
Íslenzka ríkið hefur dregið fyrir dóm þrjú fyrirtæki, sem hafa nýtt ákvæði EES-samningsins um frjáls milliríkjaviðskipti og selja í krafti þeirra íslenzkum neytendum áfengi á netinu. Hópur sem segist tala fyrir lýðheilsu hefur ekki mátt á heilum sér taka vegna starfsemi þessara fyrirtækja, sem lýðheilsupostularnir segja auka aðgengi að áfengi og um leið auðvitað neyzlu þess.
Fleiri söluleiðir auka ekki neyzlu
Opinber gögn styðja hins vegar ekki slíkan málflutning. Á sama tíma og söluleiðum áfengis hefur fjölgað með tilkomu netverzlananna, dregst neyzla áfengis á mann saman samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þær tölur ná bæði til sölu í Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins (ÁTVR) og í netverzlunum og eru reiknaðar út frá greiddum áfengisgjöldum, en netverzlanirnar standa auðvitað skil á þeim sköttum eins og öðrum.
Í viðtali á Vísi fyrir skömmu sagði forstjóri ÁTVR, Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, að minni áfengisneyzla væri jákvæð þróun. Ríkiseinkasalan byggði á lýðheilsusjónarmiðum og meðal lykilhlutverka stofnunarinnar væri að takmarka aðgengi og stuðla að ábyrgri neyzlu. Ef neyzlan væri að minnka samræmdist það markmiðum ríkisins.
Einkasalan er ekki einkasala og takmörkun er útvíkkun
Það má velta fyrir sér tveimur forsendum í þessum málflutningi.
Annars vegar er ríkiseinkasalan auðvitað ekki nein einkasala lengur. Ríkið leyfði smáframleiðendum sölu á framleiðslustað, sem þýðir til dæmis að nú er þessi fína einkarekna bjórbúð í Skipholtinu, opin mun lengur fram á kvöld en Vínbúðirnar. Ríkið einkavæddi líka stærstu vínbúð landsins í Leifsstöð og enginn stuðningsmaður „ríkiseinkasölunnar“ á Alþingi hreyfði andmælum. Ríkið horfir í gegnum fingur sér með sölu áfengis t.d. í vegasjoppum, á tjaldstæðum og í kjörbúðinni í Leifsstöð og lætur vínklúbba áhugamanna óáreitta. Þetta er mjög langt frá því að vera „einkasala“.
Hins vegar hefur ÁTVR kannski ekki unnið neitt sérstaklega ötullega að því að takmarka aðgengi að áfengi. Á árunum 1995 til 2025 fjölgaði útsölustöðum þannig meira en tvöfalt, úr 26 í 57. Á sama tíma lengdist afgreiðslutími, vefverzlun var opnuð o.s.frv. Einhver myndi kannski frekar kalla það útvíkkun en takmörkun.
En hvað um það; gefum okkur bara samt að það að láta suma áfengissölu einkaaðila óáreitta og stórauka þjónustu ríkisvínbúðanna sé liður í að takmarka aðgengi að áfengi, í samræmi við markmið ríkisins.
Heimsending úr netverzlun eykur hvorki aðgengi né neyzlu
Nú ætlar netverzlun ríkisvínbúðarinnar að gera það sama og einkareknar vínbúðir á netinu hafa gert; að bjóða upp á heimsendingu áfengis til viðskiptavina. Greinarhöfundur velti því fyrir sér í samtali við mbl.is fyrr í vikunni hvort sú aðgerð væri líka liður í stefnu ríkisins um að takmarka aðgengi að áfengi.
Í samtali við sama fjölmiðil í gær staðfestir forstjóri ÁTVR að það sé einmitt raunin. Hún hafnar því að heimsendingar feli í sér aukið aðgengi að áfengi og segir að reynslan af heimsendingum frá systurstofnunum í Noregi og Svíþjóð sýni að heimsendingar leiði ekki til aukinnar heildarneyzlu. Með því að taka upp heimsendingu sé leyst úr vanda birgja sem hafi kvartað undan því að komast ekki í hillur ÁTVR með vörur sínar, en í vefverzluninni sé breiðara úrval en í Vínbúðunum.
Það er gott að þetta liggur fyrir af hálfu Ríkisins, því að þetta er einmitt það sem forsvarsmenn einkarekinna netverzlana hafa bent á. Aukin fjölbreytni í vali neytenda leiðir ekki sjálfkrafa til aukinnar áfengisneyzlu.
Er ríkið sömu skoðunar og Ríkið?
ÁTVR heyrir undir fjármálaráðherrann, sem hefur látið í það skína að honum þyki sakamál gegn netverzlunum eðlileg, þótt honum hafi reyndar tekizt að halda því fram í sama viðtalinu að áfengislöggjöfin væri skýr, en engu að síður svo óskýr að atbeina dómstóla þyrfti til að skýra hana.
Nú liggur fyrir af hálfu forstjóra Ríkisins að heimsending úr netverzlun sé þjónusta sem ekki eykur aðgengi að áfengi og stuðlar ekki að aukinni áfengisneyzlu. Þá vaknar óneitanlega sú spurning hvort aðrir þeir sem um áfengislöggjöfina fjalla af hálfu ríkisins, þingmenn og ráðherrar, beiti sér fyrir því að lögin verði löguð að slíkum nútíma viðskiptaháttum og ríkið hætti að setja þá á sakamannabekk, sem stunda eðlileg viðskipti.
Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda